Haraldur Ólafsson segir augljóst að verið sé að koma Íslandi í skrefum inn í ESB

frettinInnlendarLeave a Comment

Haraldar Ólafssonar prófessors í veðurfræði við Háskóla Íslands og formaður Heimssýnar var í viðtali á Útvarpi Sögu í síðustu viku og sagði það alveg vera augljóst að það ferli sem væri í gangi með innleiðingu ESB tilskipana á Íslandi miðaði að því að koma Íslandi inn í Evrópusambandið í litlum skrefum.

Hann sagði meðal annars:

„Til dæmis þessir dómstólar og þetta tveggja stoða kerfi í þessu EES samstarfi sem við erum í sem var ákveðið vegna þess að menn töldu alveg fráleitt að EFTA ríkin færu að framselja dómsvald til hins aðilans. Þetta kerfi hefur smám saman gufað upp, þetta hefur Carl Baudenbacher í raun og veru staðfest í skoðanaskiptum hans og Hjartar Guðmundssonar í Morgunblaðinu með því að segja að þetta gangi ekki upp og þess vegna eigi Evrópusambandið bara að ráða og þetta tveggja stoða kerfi sem menn hafa ákveðið að yfirgefa til dæmis í orkumálum sé bara kerfi liðins tíma. Hann Carl kom hingað fyrir þingnefnd til að útskýra að þetta væri allt í lagi af því Evrópumenn væru svo góðir að það væri í lagi að þeir fengju meiri völd á Íslandi“ sagði Haraldur.

Þarna er væri hægt að skilja orð Carls á annan veg en svo að betra væri að Evrópudómstólinn tæki að sér hlutverk EFTA dómstólsins, sagði Haraldur:

„Það er ekki hægt að skilja þetta á annan veg, hversu langan tíma sem það svo tekur, það er verið nú þegar að skrifa lög sem síðan verða lög á Íslandi sem ganga framhjá þessu tveggja stoða kerfi.“

Ákvarðanir teknar á tveggja manna fundum

Haraldur sagði Evrópudómstólinn vera mjög pólitískan og að hans markmið væri að styðja við samrunaferli.

„Það er deginum ljósara nú þegar Bretar eru farnir að þá verður meiri samruni og valdasamþjöppun og hún verður í Frakklandi og Þýskalandi og ákvarðanir verða framvegis teknar á tveggja manna fundum, Bretar voru alltaf á bremsunni í þessu samrunaferli og nú eru menn lausir við þá, þá er hægt að gera þetta sterkara, svo er sætt lagi þegar vinveitt stjórnvöld eru við völd að þá er stokkið til og breytingar gerðar.“

Hann sagði einnig að fyrirhugaðar breytingar á Shengen samstarfinu sem Ísland er aðili að feli í sér að Evrópusambandið vilji nú ráða því hverjir komi til landsins, það sé gert með því að láta fólk greiða sérstakt gjald vilji þeir fá áritun til þess að komast til Evrópu.

Hlusta má á viðtalið við Harald á Útvarpi Sögu hér:

Skildu eftir skilaboð