Umboðsmenn Norðurlanda funduðu í Reykjavík – kvörtunum fjölgað alls staðar undanfarin misseri

frettinInnlendarLeave a Comment

Fundur umboðsmanna þjóðþinganna á Norðurlöndum hófst í Reykjavik á þriðjudag og lauk í gær, 17. ágúst.  Þar báru umboðsmennirnir saman bækur sínar og fóru yfir helstu viðfangsefni hverju sinni.  Þetta kemur fram á vefsíðu umboðsmanns Alþingis.

Hlutverk hans er að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og tryggja rétt einstaklinga gagnvart stjórnvöldum landsins. Skal umboðsmaður gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti, sbr. 2. gr. laga nr. 85/1997.

Kvörtunum fjölgað hvarvetna

Umboðsmenn og starfsfólk þeirra frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Noregi og Svíþjóð sóttu fundinn ásamt umboðsmanni Alþingis og samstarfsfólki. Meðal annars var fjallað um hvernig embættin tókust á við COVID-19 og möguleg áhrif faraldursins á stjórnsýsluna til framtíðar, rætt um þróun rafrænnar stjórnsýslu, eftirlit umboðsmanna með stjórnsýslu sem fram fer á erlendri grundu og svonefnt OPCAT-eftirlit embættanna. Meðal umræðuefna er einnig innra skipulag umboðsmannsembættanna og sú þróun að kvörtunum hefur fjölgað hvarvetna undanfarin misseri án þess að einhver einhlít skýring þess blasi við“, segir í frétt umboðsmanns Aþingis.

„Embætti umboðsmanns Alþingis er stofnað að norrænni fyrirmynd og í framkvæmd embættisins hefur mjög verið litið til þess sem gerist hjá systurstofnunum okkar á Norðurlöndunum. Svona fundir eru fyrst og fremst mikilvægt tækifæri til að styrkja tengsl þessara stofnana, skiptast á skoðunum og deila reynslu okkar,“ segir Skúli Magnússon.

Alla jafna er þessi fundur haldinn annað hvert ár en að þessu sinni eru þó fjögur ár liðin frá þeim síðasta sem fram fór í Finnlandi. Til stóð að fundurinn yrði haldinn hér á landi árið 2020 en fresta þurfti honum um tvö ár vegna heimsfaraldursins.

Skildu eftir skilaboð