Knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson hættur að spila fótbolta eftir tvö hjartastopp

frettinÍþróttirLeave a Comment

Emil Pálsson knattspyrnumaður fór í hjartastopp og hneig niður í leik með norska liðinu Sogndal í byrjun nóvember á síðasta ári en endurlífgunartilraunir báru árangur.

Emil byrjaði aftur að æfa fótbolta en fór í annað hjartastopp á æfingu með FH í maí. Eftir tvö hjartastopp á hálfu hefur hann ákveðið að hætta.

„Fótbolti hefur alltaf verið stærsta ástríðan í lífi mínu og ég er stoltur af ferlinum sem ég er að skilja eftir mig með þessu. Að spila atvinnumennsku eru forréttindi og ég naut hverrar mínútu,“ segir Emil í færslu á Instagram.

„Ég vil sérstaklega þakka liðsfélögum mínum, sem margir eru orðnir nánustu vinir mínir til þessa dags, og þjálfurum og starfsfólki fyrir að hafa trú á mér.“


Skildu eftir skilaboð