Hæstaréttarlögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar um mál Guðjóns Valdimarssonar vopnasala, sem er faðir ríkislögreglustjóra í grein á Vísir.is í morgun og deilir þar hlekkjum á fréttir þess efnis að hann hafi selt ólögleg vopn til margra ára.
„Nú hefur komið í ljós að ríkislögreglustjóri, sem þá var lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, fékk upplýsingar um það 10. júlí 2018, að maður sem gaf skýrslu hjá lögreglu vegna vopnalagabrots, hafi greint frá því að hann hafi keypt vopnið af föður ríkislögreglustjóra, sem selur vopn á netinu (www.vopnasalinn.net),“ skrifar Vilhjálmur.
„Í skýrslutökunni var jafnframt upplýst að faðir ríkislögreglustjóra hefði selt marga slíka riffla og þeir kostuðu um 1.500.000,- (dómur Landsréttar í máli nr. 607/2019, uppkveðinn 29. janúar 2021). Við flutning málsins í héraði, 13. júní 2019, var upplýst að faðir ríkislögreglustjóra hefði selt öðrum sams konar vopn og ákærða. Þrátt fyrir það sá lögreglan ekki ástæðu til þess að hefja rannsókn á meintri ólögmætri vopnasölu föður ríkislögreglustjóra.
„Samkvæmt lögum um meðferð sakamála skal lögregla hvenær sem þess er þörf hefja rannsókn út af vitneskju eða grun um að refsivert brot hafi verið framið hvort sem henni hefur borist kæra eða ekki. Ríkislögreglustjóri hafði upplýsingar um það sumarið 2018 að grunur léki á að faðir hennar væri að selja ólögleg vopn, sjálfvirka eða hálfsjálfvirka riffla, sem í raun eru ekkert annað en hríðskotabyssur. Þær upplýsingar voru síðan staðfestar í héraðsdómi 13. júní 2019.“
„Af framansögðu er ljóst að ríkislögreglustjóri virðist hafa látið sér í léttu rúmi liggja að rökstuddur grunur væri uppi um að faðir hennar væri að selja hríðskotabyssur á Íslandi. Við húsleit lögreglu í ,,stóra hryðjuverkamálinu” fjórum árum síðar fundust meðal annars samskonar vopn og fjallað var um í dómi Landsréttar nr. 607/2019,“ skrifar Vilhjálmur.
Lögregla vissi af málinu í fjögur ár án þess að aðhafast
„Það er ætlun lögreglu, hvort sem að það stenst skoðun eða ekki, að þessi vopn hafi meðal annars átt að nota til þess að gera hryðjuverkaárás á lögregluna. Það er ákveðin kaldhæðni fólgin í því að ríkislögreglustjóri og embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu bjuggu yfir upplýsingum um þessa vopnasölu í fjögur ár án þess að aðhafast neitt.“
„Með því er staðfest að dómgreindar- og getuleysi lögreglu til þess rannsaka sakamál á grundvelli upplýsinga sem eru beint fyrir framan nefið á henni er algjört. Á sama tíma er lögreglan með háværar kröfur um fá að njósna eftirlitslaust um borgarana á grundvelli svokallaðra forvirkra rannsóknarheimilda.
Er þessum mannskap treystandi til þess? Svarið er nei,“ segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur sagði jafnframt í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að Sigríður Björk hlyti að íhuga stöðu sína. Þar kom fram að lögreglan verst allra frétta og vill engu svara um málið.
Frétt Stöðvar 2 má sjá hér neðar.
One Comment on “Ríkislögreglustjóri vissi af ólöglegri vopnasölu föður síns til margra ára án þess að aðhafast: „er þessum mannskap treystandi?“”
this judge should be suspended, because he forgot that the man is innocent until proven otherwise. This judge ruled without a trial, and calls for a lynching. The only illegal act at this moment is done by this judge and not by Guđjon or his daughter. in the same way, in the last two years, various doctors, so-called experts and ministers forced people to get vaccinated against covid and die because of it. They who vaccinate this people are the only proven terrorists here in Iceland. It is quite clear that this is politicization and an attempt to intimidate people in order to take away guns from people. Guđjon and his daughter were sacrificed for this purpose. The results are already visible. The gun laws were changed in express time, and nobody cares anymore if Guđjon is guilty or not. The atmosphere of lynching was again used in the politicization of hostility towards citizens, and once again, as in covid, Iceland primitively succumbed to the experts of lynching.