Páll Steingrimsson skipstjóri, segir á fésbókarsíðu sinni að RÚV sýni af sér algera hlutdrægni sem brýtur þar með fjölmiðlalög og siðareglur ríkisfjölmiðilsins um hlutleysi.
Páll segir að honum finnist kostulegt að sjá Sigríði Dögg formann blaðamannafélagsins og spyril í Kastljósi, væna einhvern um að þora ekki að mæta einhverjum í þætti hjá sér, „ég er nefnilega tvisvar sinnum búinn að bjóðast til að mæta upp í Efstaleiti og ræða símamálið, en þá er allt í einu enginn áhugi á að ræða við brotaþola, en sakborningum er gefinn ómældur tími fyrir drottingaviðtöl... þar sem þeir fá að ljúga óáreittir,“ segir Páll.
Páll birtir svo eftirfarandi tölvupóst sem hann sendi á stofnunina með færslunni:
Hér neðar má svo sjá fjölmiðlalögin sem ríkisfjölmiðilinn brýtur og/eða hunsar að öllu leiti, því enginn áhugi er fyrir að heyra hlið brotaþolans í málinu og þar með ekki hægt að halda fram hlutleysi.
26. gr. Lýðræðislegar grundvallarreglur.
Fjölmiðlaveita skal í starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og standa vörð um tjáningarfrelsi. [Hún skal virða mannréttindi og jafnrétti, og einnig friðhelgi einkalífs nema lýðræðishlutverk fjölmiðlaveitu og upplýsingaréttur almennings krefjist annars.] 1)Fjölmiðlaveita skal gæta þess að uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni [í fréttum og fréttatengdu efni] 1) og gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt karla sem kvenna.
Þá er einnig að finna upplýsingar um stefnu RÚV sem stofnunin virðist einnig hunsa og má sjá hér neðar:
Fréttastofa RÚV nýtur almenns trausts sem áreiðanlegur fréttamiðill. Fréttamönnum ber að kappkosta í störfum sínum að viðhalda þessu trausti. Nákvæmni, hlutlægni og heiðarleiki í starfi eru nokkrar forsendur þess að fréttastofan og þættir á vegum hennar haldi trausti og virðingu almennings.