Ekki hægt að nálgast athuganir eða spár á vedur.is.

frettinVeður1 Comment

Er óveðrið gengið yfir, hætt við, hefur það færst til eða hefur því seinkað? Veðurstofan svarar því ekki. 

Veðurathuganir eru á vef Vegagerðar, þar virka stöðvar sem Vegagerðin á (en ekki stöðvar Veðurstofu).  Veðurspár eru svo á belgingur.is og blika.is.  Þessir aðilar fá líklega þakkarskeyti frá Veðurstofunni innan skamms.  Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa engar skyldur í  málinu, en það hefur Veðurstofan. Belgingur og Blika fá ekki krónu fyrir að halda uppi þjónustunni, en Veðurstofan himinháar upphæðir.

Engin spákort og engar veðurathuganir er að finna á vef Veðurstofunnar:

#image_title

One Comment on “Ekki hægt að nálgast athuganir eða spár á vedur.is.”

  1. En veðurstofan spáir því að fram undan sé hamfarahlýnun! Stjórnmálamenn vilja því skattleggja almenning svo hægt sé að stjórna veðurfarinu!!!

Skildu eftir skilaboð