Kate Bedingfield sem hefur starfað sem samskiptastjóri Joe Biden Bandaríkjaforseta frá því árið 2015 mun láta af störfum síðar í þessum mánuði.
Ben LaBolt mun taka við af Bedingfield en hann starfaði fyrir Obama. LaBolt var einn af helstu kosningastjórum Obama og hjálpaði síðar Ketanji Brown að verða hæstaréttardómari.
Í síðasta mánuði var sagt frá því að starfsmannastjóri Hvíta hússins, Ron Klain, myndi láta af störfum á næstu vikum.