Allt að 20 stiga frost í dag

frettinInnlendarLeave a Comment

Veðurstofan spáir fremur hægri austlægri átt og skýjað með köflum, en dálítil él við sjávarsíðuna N- og A-til. Austan 8-15 m/s S- og V-lands seint í kvöld. Frost 1 til 14 stig, kaldast inn til landsins. Hvessir S- og V-til á morgun, austan 10-20 og allvíða skafrenningur annað kvöld, hvassast syðst, en lengst af hæg vindur og þurrt um landið NA-vert. Frost 0 til 20 stig, kaldast inn til landsins NA-lands.

„Þá er útlit fyrir að bæti smám saman í í vind á morgun, víða hvassviðri og skafrenningur um landið sunnan- og vestanvert annað kvöld og dregur úr frosti á þeim slóðum en hæglætis veður og talsvert frost á Norður- og Austurlandi. Útlit er fyrir að hvessi ennfremur allra syðst á landinu aðra nótt. Skil lægðarinnar sem veldur þessum vindi virðast lítið ná inná land sem er stór bót í máli,“segir á vef veðurstofunnar.

Skildu eftir skilaboð