Stærstu mótmæli í kjölfar kosninga í sögu Brasilíu

frettinErlent, MótmæliLeave a Comment

Stanslaus mótmæli hafa verið í helstu borgum Brasilíu síðan að úrslit forsetakosningana lágu fyrir, þar sem Luiz Inacio Lula da Silva fyrrum forseti Brasilíu fékk 50,9% atkvæða og Jair Bolsonaro núverandi forseti 49,1%.

Á miðvikudaginn síðasta voru mótmælin þau stærstu í kjölfar kosninga í landinu. Reiknað er með miklum mómtælum á sunnudag og hugsanlega verkföllum þann 7. nóvember. Í dag gengu lögreglumenn inn á landsþingið til að mótmæla „svindlinu“.

Fjöldi Brasilíubúa segja kosningaúrslitin hafa verið fölsuð og hafna nýkjörnum forseta Lula.

„Á miðvikudag voru stærstu mótmæli í Brasilíu eftir kosningar í sögunni. Mótmælendur hafna Lula sem sat í fangelsi fyrir spillingu og peningaþvætti þar til hann var látinn laus af einum hæstaréttardómara, tímanlega til að bjóða sig fram til forseta í þriðja sinn.“

Skildu eftir skilaboð