Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins. Hann fékk 1.010 atkvæði, rúm 59% greiddra atkvæða, en Guðlaugur Þór fékk 687 atkvæði eða um 40% greiddra atkvæða.
Framundan er kjör varaformanns og einnig ritara. Aðeins einn hefur lýst yfir framboði, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra en þrír vilja ritaraembættið; Bryndís Haraldsdóttir og Vilhjálmur Árnason, þingmenn, og Helgi Áss Grétarsson varaborgarfulltrúi.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var kjörinn ritari flokksins rétt í þessu eftir aðra umferð kosninga í ritaraembættið á landsfundi.
Vilhjálmur bar þá sigur úr býtum gegn Bryndísi Haraldsdóttur, ritara þingflokksins, í einvígi en Helgi Áss Grétarsson varaborgarfulltrúi var útilokaður eftir fyrstu umferð kosninga þar sem hann hafði fengið fæst atkvæði.
Alls greiddu 937 atkvæði í seinni umferðinni en þar af voru 924 atkvæði gild. Vilhjálmur hlaut 538 atkvæði en Bryndís hlaut 386 atkvæði. Lýsti Kristín Edwald, formaður kjörnefndar, því Vilhjálm sem réttkjörinn ritara Sjálfstæðisflokksins.