Eftir Arnar Sverrisson:
Íslenskir læknar, með Landlæknisembættið í broddi fylkingar, hafa nú gefið út nýtt sjúkdómsgreiningarheiti: langcovid. Hugtakið virðist hugsað sem feluhugtak fyrir langvinnar aukaverkanir af bóluefnunum, sem embættið og stjórnvöld hafa sært fjölda manns til að taka. Dug- og ábyrgðarleysi nefndra stjórnvalda hlýtur að varða við lög.
Nú stígur nýr sóttvarnalæknir á stokk og endurtekur vafasamar staðhæfingar um bóluefnin og hvatingar fyrirrennara síns, en steinþegir eins og gröfin um aukaverkanir þeirra.
Meðan íslensk stjórnvöld láta semja fyrir sig hreinsunarskýrslur og berja sér á brjót, streyma inn uppljóstranir um glæpsamlegt ábyrgðarleysi hliðstæðra stjórnvalda erlendis, niðurstöður óháðra rannsakenda á meinviðbrögðum við bóluefninu og grímunum - svo og greiningar á skemmdum í efnahagslífinu.
„Falsfréttir“ gærdagsins eru staðreyndafréttir í dag.