Bænin sem olli usla

frettinErlent, Guðrún Bergmann, TrúmálLeave a Comment

Guðrún Bergmann skrifar:

Þessi áhugaverða bæn var á sínum tíma flutt í Kansas í Bandaríkjunum. Svo virðist hún sé enn að valda usla.

Þegar Joe Wright presti við Central Christian Church í Wichita var boðið að flytja ræðu við setningu löggjafarþingsins í Kansas í janúar árið 1996, bjuggust allir við svipaðari ræðu og vanalega. Eftirfarandi bæn kom þeim því verulega á óvart.

BÆNIN

„Himneski faðir, við stöndum frammi fyrir þér í dag til að biðjast fyrirgefningar og leita ráða hjá þér og leiðsagnar. Við vitum að orð þitt segir: „Vei þeim sem kalla illt gott“, en það er nákvæmlega það sem við höfum gert.

  • Við höfum glatað andlegu jafnvægi og umsnúið gildum okkar.
  • Við höfum gert grín að algerum sannleika orða þinna og kallað þau fjölhyggju.
  • Við höfum dýrkað aðra guði og kallað það fjölmenningu.
  • Við höfum samþykkt öfuguggahátt og kallað það óhefðbundinn lífsstíl.
  • Við höfum arðrænt fátæka og kallað það happdrætti.
  • Við höfum verðlaunað leti og kallað hana félagslega aðstoð.
  • Við höfum drepið ófædd börn okkar og kallað það valkost.
  • Við höfum skotið þá sem vinna við fóstureyðingar og kallað það réttlætanlegt.
  • Við höfum vanrækt að aga börnin okkar og kallað það uppbyggingu á sjálfsmati.
  • Við höfum misnotað valdið og kallað það pólitík.
  • Við höfum misnotað almannafé og kallað það nauðsynleg útgjöld.
  • Við höfum stofnanavætt mútugreiðslur og kallað þær hnossgæti embættisins.
  • Við höfum ásælst eigur náunga okkar og kallað það metnað.
  • Við höfum mengað andrúmsloftið með blótsyrðum og klámi og kallað það tjáningarfrelsi.
  • Við höfum gert grín að gömlum gildum forfeðra okkar og kallað það uppljómun.

Ó Guð, snertu hjörtu okkar í dag; hreinsaðu okkur af sérhverri synd og veit okkur lausn.

Amen!“

STERK VIÐBRÖGÐ

Viðbrögðin við ræðunni/bæninni létu ekki á sér standa. Fjöldi þingmanna gekk úr salnum í mótmælaskyni á meðan á henni stóð. Símtölum linnti ekki hjá Central Christian Church eftir að efni hennar kvissaðist út og beiðnir um afrit af bæninni bárust frá ýmsum stöðum í Bandaríkjunum, svo og frá öðrum löndum.

Haft var eftir prestinum Joe Wright eftir þann usla sem ræða hans olli: „Það var ekki ætlun mín að móðga einhverja einstaklinga, en ég biðst ekki afsökunar á sannleikanum.“

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn til að fá reglulega sendar greinar um sjálfsrækt, andleg málefni, stjörnuspeki og náttúrulegar leiðir til að styrkja heilsuna.

Mynd:  Patrick Fore á Unsplash

Heimildir: HÉR er að finna heimildir um ræðuna og þú lesandi góður metur svo hvort hún haldi enn fullu gildi sínu í dag.

Skildu eftir skilaboð