Eftir Arnar Sverrisson:
Öldungurinn, Seymour Myron Hersh (f. 1937), er, samkvæmt skilningi RÚV, samsærisblaðamaður eins og þeir, sem gera sér hugmyndir um „djúpríkið“ (þ.e. hagsmunaaðilja, sem stjórna samfélaginu að tjaldabaki).
Hugtakinu, samsæri, var upphaflega beitt af leyniþjónustu Bandaríkjamanna um málflutning þeirra, sem gerðu athugasemdir við skilning stofnunarinnar og áróður um menn og málefni, ekki síst eigin fólskuverk, glæpi, undirróður og njósnir um eign þegna.
Það fjallaði Seymour einmitt um á sínum tíma eins og lygarnar um morð Osama bin Laden, pyntingar í fangelsi Bandaríkjamanna í Írak og margt fleira. Því er hann vondur blaðamaður, beygir sig hvorki fyrir CIA, né brosir. Seymour segir hins vegar sannleikann, enda er hann sagna bestur.
RÚV sakar Seymour um að vera smiður samsæriskenninga
Í hugarheimi fréttamanna RÚV er Seymour smiður samsæriskenninga. Því hafa reyndar fleiri látið liggja að og sagt. Sumar fréttastofur – eins og hin ríkisrekna RÚV „okkar allra“ – reyna nú að þegja í hel síðustu grein Seymour um hryðjuverk vina okkar, Norðmanna og Bandaríkjamanna. Þeir unnu það afrek að sprengja í sundur gasleiðslu Rússa og nokkurra vestræna ríkja.
Það hefur heldur ekki heyrst hósti né stuna frá ríkisreknu norsku fréttastofunni, NRK (Norsk rikskringkasting). Í Þýskalandi heyrast aftur á móti raddir, sem krefjast þess, að þýska ríkið bregðist við hryðjuverkunum á eigum þess.
Eins og þjóðum mun kunnugt er nefnt hryðjuverk til þess fallið að auka sölu á norsku gasi til Póllands og koma iðnaði annarra ríkja álfunnar á kné, enda þótt yfirlýst markmið hafi vitaskuld verið að hjálpa lýðræðis- og frelsisdýrlingi okkar, Volodomyr Úkraínuforseta, að rústa Rússum. (RÚV bauð íslenskum almúga upp á hyllingu leiðtogans í gær (15. feb. 2023) og Alþingi Íslendinga hefur boðið honum skjásamveru í þingsalnum).
Orðspor Norðmanna býður enn einn hnekkinn
En það kynni að fara svo, að vopnin snerust í höndum norskra og bandarískra. Þeir eru eins og óvitar með bjúgverpil. Orðspor Norðmanna býður enn einn hnekkinn. Þeir eru nú orðnir rakin hryðjuverkaþjóð. Undir forystu stríðsbrjálæðingsins, Jens Stoltenberg, sprengdu þeir Líbíu í tætlur. Síðar lömdu þeir á Afgönum.
Þrátt fyrir hryðjuverk, ógrynni fjármuna og hernaðartól, virðist harðna á dalnum í stríði Vesturveldanna og Rússa í Úkraínu, að sögn Christopher Cavoli, yfirhershöfðingja Bandaríkjamanna. Hann sagði nýlega, á varnarráðstefnu í Svíþjóð, á þessa leið:
Æðstu leiðtogar Nató hafa áhyggjur af gríðarlegu tapi og notkun skotfæra í Úkraínu. … Stríðið hefur vaxið áætlunum okkar yfir höfuð. En við verðum að bregðast við því.
En það er hængur á. Birgðir drápstóla virðast á þrotum eins undarlega og það hljómar. T.d. hefur Jósef Bandaríkjaforseti trúlega lofað upp í ermina á sér, hvað langdrægar drápsflaugar áhrærir, samkvæmt fréttum Politico. Jens Stoltenberg skælir líka yfir vopnaeyðslusemi úkraínska hersins.
Bretar hyggjast færa Úkraínumönnum heilu vopnaverkmiðjurnar
Til að bæta úr skák ætlar Jósef að auka framleiðslu á fallbyssukúlum um 500%. Bretar hyggjast færa Úkraínumönnum heilu vopnaverkmiðjurnar til viðbótar við orrustuþotur og skriðdreka. Þessi óþverravarningur kemur til viðbótar lífefnavopnaverksmiðjunum, sem Bandaríkjamenn komu á laggirnar. Svo nú kætast menn á úkraínsku vígstöðvunum. Kjarnorkustyrjöldin gæti verið fótum nær en hyggur. Rússnesk kjarnorkuvopnafley sveima nú við landamæri Bretlands og Noregs.
Ola Tunander er gagnfróður, sænskur vísindamaður við Friðarrannsóknarstofnunina í Ósló. Hann hefur skrifað ágæta grein einmitt um þessa hættu: „Leið okkar til kjarnorkustyrjaldar“ (Vår vei til atomkrigen).
Ola segir m.a., að þegar litið sé til þess í fyrsta lagi, að loforð vestrænna leiðtoga um að halda aftur af stækkun Nató að landamærum Rússa, hafi verið svikin, og í öðru lagi, að Rússar hafi margsinnis lýst því yfir, að brugðist verði við með hernaði af þeirra hálfu, verði þau loforð svikin, eru líkur til, að látið verði sverfa til stáls. (Því bera Íslendingar fulla meðábyrgð á.)
Minsk samkomulagið
Loforð vestrænna leiðtoga voru aftur svikin í sambandi við Minsk samkomulagið. Það var meira að segja staðfest af Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Í þessu samkomulagi fólst m.a. sjálfstjórn rússnesku héraðanna, Donetsk og Lugansk. Rússar höfðu ekki ljáð máls á umsókn þeirra um aðild að Rússneska sambandsríkinu, þrátt fyrir látlausar árásir stjórnarinnar í Kænugarði og mannfall í námunda við 12.000. En það breyttist við brot á Minsk samkomulaginu.
Að þessu sögðu má ljóst vera, að samkvæmt skilningi Rússa, er um líf og dauða að tefla og lítil von til friðarsamninga, enda Vesturlönd varla samningshæf.
Yfirhershöfðingi Nató í Evrópu, Wesley Clark, hefur látið þau orð falla, að Rússum sé sigurinn vís, nema herjum bandalagsins verði beitt gegn þeim í Úkraínu.
Jósef (og íslenski utanríkismálaráðherrann) hefur margsinnis lýst því yfir, að gengið verði milli bols og höfuðs á Rússum. Það liggur því ljóst fyrir, hvert stefnir.
Íslenska ríkisstjórnin er örlát á skattfé okkar til stríðsrekstrarins. Hún hefur valið okkur „lið.“
2 Comments on “Góður blaðamaður brosir við CIA: Seymour Hersh og kjarnorkustyrjöldin”
Arnar, heyrir þú eitthvað meira um hryðjuverk BNA og Noregs á DV eða Vísi?
Ég er að benda þér á að hinir ruslmiðlarnir eru ekkert betri enn RUV jafnvel verri!
Núna virðist DV vera búnir að fela skítadreifarann sinn hann Kristján Kristjánsson undir allri ritstjórninni þegar þeir eru að dreifa áróðursbullinu úr smiðju NATO stríðsbandalagssins.
Eins og ég hef áður sagt eru þetta EKKI blaðamenn, þetta eru mótmælendur með minna enn engann skilning á viðfangsefninu!
Ísland úr NATO og það STRAX!
Þessi upplýsir nokuð vel það sem BNA hefur verið að gera frá seinna heimsstyrjöld
https://www.youtube.com/watch?v=5BXtgq0Nhsc