Öryggisráðgjafar í New York Times: Stríðið í Úkraínu er „óvægin hrakför“

frettinHallur Hallsson, Úkraínustríðið2 Comments

Hallur Hallsson skrifar:

Í liðinni viku birti New York Times opið bréf 14 öryggissérfræðinga þess efnis að pólitísk lausn verði fundin á Úkraínu-stríðinu. Þeir kalla stríðið óvægna hrakför; War in Ukraine is Unmigitated Disaster. Sífellt fleiri eru að átta sig á stöðunni á vígvöllum Úkraínu, nema að því er virðist íslenskir ráðamenn. Friðrik Jónsson öryggis- og varnarmála sérfræðingur var á Stöð 2 um helgina. „...Úkraínumenn [hafi] tekið þá ákvörðun að neita Rússum um að ná borginni og nærliggjandi svæðum. Það hefur gengið ágætlega,“ sagði sérfræðingurinn. Jafnframt að siðferði- og hernaðarlegur stuðningur Vesturveldanna sé mikilvægur. Þetta þótti mér hraustlega mælt. Hann líkt og vinir mínir Óli Björn Kárason og Albert Jónsson virðist blindur á gang stríðsins og siðferðilegt niðurbrot Vesturlanda. Svo er líka um þær ráðstýrur Kötu og Dísu. Öll eru blind á upphaf Úkraínustríðsins 2014 þegar herför Kænugarðs gegn eigin þegnum hófst í Donbass; blind á  trúarofsóknir gegn orthodox fólki og kirkjum þeirra; blind á Azov-nazista í úkranska hernum; blind á spillingu 55 milljarða olíupeninga í vasa Zelinskiy og félaga; blind á hryðjuverk Biden á Nord Stream; blind á breska úran geislaskýið yfir A-Evrópu; Úkraínu, Póllandi, Moldóvíu og Rúmeníu í boði Rikka ríka í Downingstræti 10.

Þau virðast blind á blóðugt valdarán í Kænugarði í boði CIA, Obama og Biden þegar um 100 manns féllu fyrir leyniskyttum á Evróputorgi og 48 manns voru brenndir í Alþýðuhúsinu í Odessa. Sitjandi forseti Úkraínu flúði til Rússlands. Wikipedia kallar valdaránið byltingu virðingar; Revolution of Dignity. Hver skrifar þessa sögu? Pedro Poroshenko nýr forseti lýsti því yfir að “…börn þeirra [Rússa] muni hírast í kjöllurum.” Þetta er vitnisburður um svakalegt hatur, kannski vegna 70 ára kúgunar Stalíns, Krjútsoffs og Brezhnevs en er friðarbragur á vestrænum skriðdrekum og F-16-þotum í Donbass? Ísland og Norðurlönd eru að hervæðast. Hvað finnst fólki?

Af hverju fór Boris til Kænugarðs?

Rússar gerðu innrás í Úkraínu 24. febrúar 2022. Pútin kallar það sérstaka hernaðaraðgerð. Rússar líta á Úkraínustríðið sem enn eina herför Vesturlanda gegn Rússlandi. Er eitthvað til í því? Vorið 2022 voru friðarviðræður í Ankara, Tyrklandi fyrir tilstilli Erdogan forseta. Samningar virtust innan seilingar þegar Boris Johnson mætti í Kænugarð í apríl’22, barði í borðið og kvað frið ekki koma til greina. Boris átti undir högg að sækja á heimaslóð vegna veislugleði í Downingstræti 10 á covid-tímum; Party-gate. Taldi Boris sig þurfa snotra styrjöld, eins og Falklanseyjastríðið 1982 þegar Magga Thacter reis úr öskustó? Förin til Kænugarðs bjargaði ekki pólitísku lífi Borisar sem hrökklaðist frá völdum 7. júlí ‘22. Davos guttinn Rishi Sunak tók sæti hans eftir snotra fléttu glóbalista. Bretar kalla hann Rikka-ríka. Maðurinn sem vildi semja frið við Rússa hét Denys Kirieiev. Hann var drepinn af SBU leyniþjónustu Zelinskiy og líki hans kastað á götu í Kænugarði öðrum til viðvörunar.

Blind á Biden glæpafjölskylduna

Friðrik talar um siðferðilegan stuðning Vesturlanda! Íslenskir leiðtogar virðast blindir á glæpafjölskylduna Biden-Crime-Family. Eftirlitsnefnd bandaríska þingsins; Oversight Committee rannsakar 1.400 milljón króna; $10M greiðslur erlendra ríkisborgara, úkranskra, rúmenskra og kínverskra til níu Biden-fjölskyldu-meðlima. Það virðist borga sig að heita Biden er fyrirsögn Moggans um þessa fléttu. Þingið boðar rannsókn á Tölvu-úr-Helvíti; Laptop-from-Hell sem FBI hylmdi yfir með Biden haustið 2020 ásamt 51 CIA-agent. Anthony Blinken safnaði undirskriftunum og hlaut embætti utanríkisráðherra í verðlaun, að sögn Davíðs Oddssonar í Reykjavíkurbréfi. Tölvan afhjúpar glæpi Biden-feðga, 459 lögbrot. Svo er það skýrsla Johns Durham sérstaks saksóknara sem var birt var í liðinni viku um uppruna Rússa-galdurs; Russia-Hoax runninn undan rifjum Hillary Clinton og FBI þess efnis að Trump væri leppur Pútin. Dómsmálanefnd þingsins hefur boðað Durham til að bera vitni fyrir þinginu. CNN kveður skýrslu Durham ...auðvitað mikið áfall fyrir FBI. Davíð skrifar: Jafnvel CNN líður illa. Biden er sílygari. Árið 1988 státaði Biden af hærri greindarvísitölu IQ en mótframbjóðandi þegar hann kvaðst hafa verið afburða nemandi með þrjár háskólagráður. Newsweek upplýsti að Biden hefði verið með eina háskólagráðu, nr. 76 af 85 nemendum frá Syracuse-háskóla; University of Syracuse.

Hverju er við að búast um framtíð Íslands ef okkar helstu sérfræðingar um varnar og utanríkismál eru blindir á siðblindu nato-ríkja og hina óvægnu hrakför í Úkraínu? Hver er skýring á blindu þeirra?

2 Comments on “Öryggisráðgjafar í New York Times: Stríðið í Úkraínu er „óvægin hrakför“”

  1. Hallur er ekki blindur en hann sér ekki bjálkan.Ef hann byggi í Rúzzlandi þá vær hann sennilega laungu dauður.

  2. Hallur, vandamálið er það að félagar þínir úr Sjálfsæðisflokknum eru ekkert öðruvísi enn sjálfskipuðu háskólalærðu varnamálaserfræðingarnir eru forritaðir úr hreiðri kanans, þetta er ekkert að fara að breytast.

    Íslenskir ráðamenn eru að setja hvert heimsmetið að fætur öðru í heimsku og það kemst engin með tærnar þar sem þeir hafa hælanna.

    Sorgleg staðreind!

Skildu eftir skilaboð