Í desember 2020 birti mbl.is frétt um að Esther Viktoría Ragnarsdóttir hafi unnið meistararitgerð sína í lyfjafræði um lyfið ivermectin, sem helst hefur verið notað gegn sníkjudýrasýkingum hjá Afríkubúum.
Í rannsókninni skoðaði Esther hvort möguleiki væri á að gefa börnum lyfið með nefúða. Hún komst einnig að því að lyfið sýndi virkni gegn kórónuveirunni sem veldur sjúkdómnum Covid-19.
Esther sagði í samtali við mbl.is:
„Upprunalega átti ritgerðin alls ekki að tengjast Covid en þegar ég fór að skrifa og leita heimilda sá ég nokkrar greinar sem fjölluðu um þetta. Ég talaði mikið við leiðbeinandann minn um þetta. Honum fannst alveg um að gera að skrifa um þetta þar sem við erum í miðjum heimsfaraldri. Hann var sjálfur ekki alveg viss hvað væri á bak við það því þetta er allt svo nýtt.“
Afríka fór betur út úr faraldrinum en reiknað var með
Lyfið ivermectin er notað við sníkjudýrasjúkdómum t.d árblindu (e. river blindness) og fleiri vanræktum sjúkdómum þróunarlanda. Þessir sjúkdómar eru mjög algengir í Afríku sunnan Sahara. Lyfið er bæði gefið sem meðferð og til að fyrirbyggja sjúkdóma á þeim svæðum þar sem þar sem þeir eru hvað útbreiddastir. Fólk tekur lyfið gjarnan í u.þ.b 15 ár eða þann tíma sem tekur sníkjudýrið að drepast.
„Margir hafa furðað sig á því hvers vegna Afríka virðist hafa sloppið betur en búist var við varðandi sýkingar og dauðsföll af völdum Covid-19 og nokkrar ástæður hafa verið taldar til. Þjóðin er ung, hún er vön að glíma við farsóttir og svo virðist sem að þeir sem þjást af sníkjudýrasjúkdómum sýkjast ekki eins alvarlega af Covid-19 og ekki í eins miklum mæli og aðrir. Þegar ég fór að fylgjast með útbreiðslu Covid-19 sjúkdómsins á netinu í þeim Afríkulöndum þar sem lyfið er notað virðist vera minna um sjúkdóminn við árnar þar sem það er mest notað. Því velti ég því fyrir mér hvort ivermectin hafi hugsanlega einhver fyrirbyggjandi áhrif gegn SARS-CoV-2,“ segir Esther.
Esther fann síðan rannsóknir ástralskra vísindamanna sem studdu grun um að lyfið hefði góð áhrif gegn SarS-Cov-2, veirunni sem veldur Covid-19.
„Vísindamenn í Ástralíu könnuðu þetta lyf gegn veirunni í tilraunaglasi og fengu mjög áhugaverðar niðurstöður, því lyfið virtist hafa mjög mikil áhrif á stuttum tíma. Mér fannst þetta áhugaverður vinkill á þetta margbrotna lyf og vildi endilega hafa það með í ritgerðinni,“ segir Esther við mbl.is
Ivermectin er ódýrt lyf og niðurstöður lofa góðu
Eftir rannsókn áströlsku vísindamannanna, gerðu margir aðrir vísindamenn og fagaðilar tilraunir á Covid-sjúklingum með því að nota lyfið eitt og sér eða með öðrum lyfjum.
„Niðurstöður hafa lofað nokkuð góðu, sérstaklega ef lyfið er tekið snemma í veikindaferlinu. Lyfið er ódýrt, breiðvirkt og hefur sannað virkni sína gegn ýmsum sjúkdómum og hefur fáar sem engar aukaverkanir. Ef niðurstöður fleiri rannsókna á ivermectin gegn SarS-CoV-2 koma til með að reynast jákvæðar og öruggar er lyfið eflaust góður kostur í þeirri baráttu, sérstaklega fyrir fátækari þjóðir heims,“ segir Esther.
Um sögu og uppgötvun nóbelsverðlaunalyfsins ivermectin má einnig lesa hér.
6 Comments on “Íslenskur lyfjafræðingur fjallaði um virkni ivermectin gegn Covid í meistararitgerð”
Samt er fólk enn að tala um „ormalyf fyrir hesta“ og þykist fyndið. Hvaða meinloka er þetta?
Hér að ofan stendur að ivermectin „hafi fáar sem engar aukaverkanir“.
Ég hef núna flett upp á fjórum erlendum leitarsíðum og þar er nú sagt allt annað. Lyfið er langt frá því að vera hættulaust. („en það eru auðvitað bara lygar“)
Ef rannsóknir á Ivermectin gegn SARS-CoV-2 sem er markaðslyf og hefur verið í sölu og dreifingu í tugi ára hefði sýnt fram á góða virkni gegn vírusinum þá hefði lyfjafyrirtækin aldrei fengið að þróa gena og frumubreytanlegt tilraunalyf, sleppt mörgum skrefum og árum í þróunnar vinnu, fengið að selja lyfið án ábyrgðar á skaðsemi þess og grætt eins og við vitum mörg þúsund milljón dollara.
Ef alþjóðasamfélagið byrjar svo að nota Ivermectin eins og raunin er í dag, þó með erfiðleikum eins og við sjáum á Íslandi þar sem opinber embætti reyna allt til að hindra það, mun á endanum koma í ljós að það virkar gegn þessum vírus og skilyrt markaðsleyfi mRNA tilraunalyfja verður á endanum afnuminn.
Samningur ísl ríkissins við GAVI tekur sérstaklega fram að það megi ekki nota nein lyf nema þau sem eru nafngreind í samninginum.
Lyfjafyrirtækin (glóbalistarnir) græða ekkert á Ivermectin enda hefur engin einkaleyfi á því lengur. Svo er margt annað að gerast bakvið tjöldin sem á eftir að koma í ljós seinna meir.
Lyf fá ekki nóbelsverðlaun
Þessi lyfjafræðingur á skilið mikið hrós fyrri hugrekki!
Ég er honum innilega sammála.
Að banna lyf sem læknar er tortryggilegt, það er öruggt.
Það minnir mig á hjá fyrr á árum þegar lyfjaiðnaðurinn bannaði
að lækna krabbamein með meinlausum aðgerðum, auðvitað
vegna þess að það gaf ekkert í kassann, hvorki fyrir læknirinn
eða lyfjaiðnaðinn.
Það sem Trausti segir hér að ofan, eru bara blákaldar staðreyndir. Það getur hver sem er og nennir að grafa eftir staðreyndum séð það að í Bandaríkjunum, þar sem þetta byrjar allt, að þarlendis (og í Evrópu og víðar) fær enginn neiðarleyfi fyrir hraðsoðsnu lyfi eða bóluefni hjá þeirra Lyfjastofnun (FDA), ef einhver lyf eru til fyrir sem vitað er að geta leyst sama vanda. Og einnig, að ef einhverju lyfi/ bóluefni hefur verið gefið neyðarleyfi, þá skal draga leyfið til baka ef uppgötvast að lyf með fullt leyfi finnst sem getur leyst sama vanda.
Fólk virðist ekki almennt átta sig á því hversu mikil völd eru orðin hjá þeim ríkustu í heiminum, eftir að þeir/ þau tóku saman höndum fyrir all nokkru síðan, með árlegum ráðstefnum í Davos í Swiss. Oft er talað um þessa elítu sem Davos klíkuna. Þau eiga orðið stæðsta hluta stærri fyrirtkja, félaga samskiftamiðla og fjölmiðla heimsin á móti (með) Kínverjum. Vanguard og Blackstone ásamt örfáum í viðbót, eiga meirihluta í flestum stærri fjölmiðlum heimsins og Bill Gates styrkir (mútar) flesta stærri miðla sem eru ekki kaupanlegir (til dæmis ríkis fjölmiðla).
Þau sem vita þetta, gera ser grein fyrir því að öllum lyfjum sem til voru fyrir, voru örugg og ódýr, hefur verið rutt úr vegi fyrir gróðaplott hinna ofurríku. Í byrjun voru það lyf sem Trump nefndi til sögunnar (hann rakst ílla í hóp þeirra ríku): Hydroxyclorocine og Clorocine, næst var það Ivermectin, seinna “gömul antiviral lyf” saman tvö í comboi, t.d. uppgötvaðist írannsókn í Swiss að tvö þannig lyf saman virkuðu mjög vel. Einnig tvö þannig lyf í comboi, sem notuð voru þegar Trump veiktist af covid. Og margt fleira má nefna. Til dæmis ef einstaklingur nær D-vítamíni yfir 50 mg/l. þá er ólíklegt að viðkomandi veikist alvarlega af covid.
En nú er FDA í US byrjaðir að gefa fullt leyfi fyrir genaþerapiu tilrauna bóluefnunum, og þá geta þeir farið að “uppgötva” gömlu lyfin.
Og varðandi eitt komment hér að ofan varðandi skaðsemi Ivermectin: Skoðaðu eigendur miðlana sem dreifa fölsuðum áróðri um Ivermectin. En eins og bæði rannsakendur og læknar hafa sagt: aukaverkanir af notkun Ivermectin í réttum skömmtum er minni en af Parasetamol.