Samkvæmt heimildum Fréttarinnar var brotist inn hjá Mannlífi í nótt og tölvum og gögnum eytt stolið.
Heimildarmaður tjáði blaðamanni einnig að Mannlíf hugðist fjalla um viðskiptamann sem væri umsvifamikill í atvinnulífinu hér á landi og telja menn að þetta tvennt gæti tengst. Innbrotið virðist hafa verið unnið af fagmönnum sem meðal annars þekktu ritstjórnarkerfið sem var ,,lagt í rúst og gögnum eytt.“
Ekki hefur náðst í Reyni Traustason ritstjóra Mannlífs en annar starfsmaður miðilsins staðfesti innbrotið en vildi ekki tjá sig frekar um málið og benti á Reyni.
Vefsíða miðilsins liggur niðri eins og er.
One Comment on “Brotist inn hjá Mannlífi og tölvugögnum eytt”
Mér skilst að miðillinn hafi verið bólusettur, sem skýrir innbrotið.