Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann einn glæsilegasta sigur í sögu handboltans, þrátt fyrir mikil forföll íslenska liðsins, þegar liðið vann ólympíumeistarana í handbolta í kvöld, 21-29.
Án átta leikmanna fóru strákarnir okkar gjörsamlega á kostum í Búdapest, hvernig sem á málið er litið.
Vörnin var stórkostleg, Viktor Gísli Hallgrímsson stórkostlegur, og sóknin stórkostleg með Ómar Inga Magnússon og Viggó Kristjánsson fremsta í algjörum úrvalsflokki. Svekktir Frakkar náðu aldrei að svara fyrir sig og niðurstaðan því stórsigur Íslands.
Frakkar skoruðu síðasta mark fyrri hálfleiksins og staðan því 17:10, Íslandi í vil, í leikhléi eftir einhvern besta hálfleik sem íslenska karlalandsliðið hefur spilað í háa herrans tíð.
Í síðari hálfleik hélt íslenska liðið mjög góðum dampi og hleypti Frökkum ekki nær sér en sex mörkum í honum.
Mest náði Ísland níu marka forystu í síðari hálfleiknum, 25:16, niðurstaðan að lokum stórkostlegur átta marka sigur, 29:21.
Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í íslenska liðinu með tíu mörk, og Viggó Kristjánsson gerði níu. Viktor Gísli varði 15 skot í leiknum. Frábær frammistaða og Ísland er því með fjögur stig í milliriðlinum, líkt og Frakkland og Danmörk.
Áfram Ísland!
One Comment on “Ísland sigraði Ólympíumeistarana 29-21”
Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott.
Hugsanlega er þessi smithrina sem lagðist harðast á svokallaða lykilmenn handboltalandsliðsins það besta sem fyrir það hefur komið.
Það neyddi þjálfara til að nota leikmenn sem hefðu líklega ekki sést á velli annars og mótlætið blés í þá eldmóði sem stigu inn sem varaskeifur en verða nú hluti af stærri heild sem nýir lykilmenn í breiðari hópi sigurvegara framtíðar.
Vonandi tekur íslensk þjóð þessa stráka til fyrirmyndar og mætir áskoruninni sem framundan er í stað þess að hlaupa skjálfandi í felur með hræddan þjálfara í brúnni. Því eins og Óli Stef sagði svo rétt að það er einmitt leiðin til að tapa. Áfram Ísland!! Áfram fjálst Ísland.
Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott,
það má finna út úr öllu ánægjuvott,
þó alla detta langi í lífsins lukkupott
er sagt að fátt sé svo með öllu illt
að ei boði gott.
– Ómar Ragnarsson
https://www.youtube.com/watch?v=r0rasmJBDgg