Ríkisstjórnin kynnti afléttingar á fundi rétt í þessu og var fengin undanþágu frá fjöldatakmörkunum á sjálfum fundinum þar sem fleiri en 10 manns voru samankomnir. Heilbrigðisráðherra gerði ráð fyrir að öllum afléttingum verði lokið 14. mars nk. Sóttvarnalæknir sagðist þó mögulega koma með ný minnisblöð ef aðstæður skyldu breytast.
Ný reglugerð tekur gildi á miðnætti og er svohljóðandi:
- Almennar fjöldatakmarkanir fari úr 10 í 50 manns.
- Nándarregla fari úr 2 metrum í 1 metra.
- Óbreytt grímuskylda, sem tekur þó almennt mið af nándarreglu.
- Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði verði heimilt að hafa opið með 75% afköstum.
- Íþróttakeppnir verði áfram heimilar með 50 þátttakendum og áhorfendur séu leyfðir á ný.
- Hámarksfjöldi í verslunum geti mest orðið 500 manns.
- Skemmtistöðum, krám, spilastöðum og spilakössum verði heimilað að opna á ný.
- Veitingastöðum, þ.m.t. krám og skemmtistöðum, verði heimilt að hleypa nýjum viðskiptavinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfirgefa staðina kl. 00.00.
- Á sitjandi viðburðum verði heimilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju hólfi, viðhalda skuli 1 metra nándarreglu milli óskyldra aðila auk grímuskyldu. Ekki verði þörf á hraðprófum.
- Í skólum verði óbreyttar takmarkanir, þó þannig að þær verði aðlagaðar framangreindum tilslökunum eftir því sem við á.
- Reglugerðin gildi í tæpar fjórar vikur til og með 24. febrúar.
.
One Comment on “Aflétt í skrefum á nokkrum vikum – ný reglugerð tekur gildi á miðnætti”
Svipurinn á henni er eins og hún sé á milli steins og sleggju. Það er eins og hún sé hræddari við eitthvað öflugra vald heldur en almenning. Hvað veit maður?