Þórólfur Guðnason hættir sem sóttvarnalæknir

frettinInnlendar4 Comments

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt formlega upp störfum frá og með 1. september 2022. Þetta kemur fram á vef Landlæknis.

Ástæður uppsagnarinnar eru bæði persónulegar og faglegar sem eru þær helstar, að nú er núverandi bylgja Covid-19 að mestu yfirstaðin og nýr kafli að hefjast í starfsemi sóttvarnalæknis.  Í þessum nýja kafla felast m.a. uppgjör á viðbrögðum við Covid faraldrinum með það fyrir augum að bæta viðbrögð við faröldrum framtíðarinnar og vinna við þau lögboðnu verkefni sem sóttvarnalækni er ætlað að sinna en hafa að miklu leyti fallið niður á tímum Covid-19,“ segir í tilkynningunni.

Þó að Ísland sé nú á góðum stað í Covid faraldrinum þá er honum hvergi lokið á heimsvísu og á meðan að svo er, þarf að fylgjast náið með tilkomu nýrra afbrigða veirunnar og hversu vel og lengi ónæmið sem einstaklingar hafa náð mun vara.  Að auki mun koma til lögskipaðra starfsloka sóttvarnalæknis á næsta ári er hann verður sjötugur.

Að lokum segir að allt ofangreint mæli með því að Þórólfur láti af störfum á þessum tímapunkti og að  Embætti landlæknis muni á næstu dögum auglýsa starf sóttvarnalæknis.

4 Comments on “Þórólfur Guðnason hættir sem sóttvarnalæknir”

  1. Á einhverjum tímapunkti þarftu að svara fyrir þínar gjörðir og ég hef fulla trú að svo verði.

  2. Sammála Trausti hér fyrir ofan. Farið hefur fé betra en Þórólfur.

  3. Auðvitað er ekkert annað eftir í stöðunni en að Morðólfur láti sig hverfa enda hlaupa glæpamenn í felur með fulla kúkableyju þegar allt er að komast upp um þá! Þín verður ekki saknað eftir alla þá glæpastarfsemi sem þú berð ábyrgð á og mun ekki verða gleymt! Sorglegast er að sjá fólkið sem treysti þér þakka böðli sínum fyrir eitursprauturnar! Komið er að skuldadögum Morðólfur! ⚔️

  4. Hann er í raun að hætta vegna aldurs, ráðherra ber ábyrgð. Það er eins og það sé eitthvað fréttnæmt á íslandi þegar ríkisstarfsmenn hætta á spenanum!

Skildu eftir skilaboð