Bólusetningalýðræðið og „áunna alnæmið“

frettinPistlarLeave a Comment

Eftir Arnar Sverrisson:

Í lýðræðisríkjum er þegnunum að töluverðu leyti stjórnað í samvinnu stjórnvalda, þ.e. stjórnmálamanna og embættisveldis annars vegar og auðjöfra eða auðvalda (ólígarka) hins vegar. Þeir fela sig oft og tíðum í alls konar sjóðum, jafnvel „góðverkasjóðum.“

Samvinnan er oftsinnis þannig vaxin, að tvinnaðir eru saman hagsmunir ofangreindra, jafnvel í alþjóðastofnunum eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, þar sem t.d. bólusetningaáhugamaðurinn og bóluefnaframleiðendahluthafinn, Bill Gates, er stór ”hluthafi.”

Sjaldan hefur slík lýðstjórnunarsamvinna birst með skýrari hætti en einmitt í veirufárinu. Stjórnvöld veittu lyfjafyrirtækjunum undanþágu frá refsilöggjöfinni og keyptu tilraunalyf fyrir nær yfirskilvitlegar upphæðir – í þágu almennings að sjálfsögðu. Samtímis voru fyrirskipaðar staðlaðar, alþjóðlegar veiruvarnaaðgerðir, sem höfðu í för með sér stórkostlegt fjárhagstjón, skuldasöfnum, frelsissviptingu og andlegar meinsemdir.

Veiran ræktuð á tilraunastofu

Veiran var ræktuð á tilraunastofum í Bandaríkjunum og Kína. Uppátækið var fjármagnað af bandarískum yfirvöldum, þ.e. skattgreiðendum. Faraldurinn var svo skilgreindur hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni á grundvell PCR próf svokallaðs, sem er vísindalega marklaust sem sjúkdómsgreiningartæki.

Sums staðar sátu fulltrúar embættisveldis og stjórnmála beggja megin borðs og mötuðu krókinn á sölunni. Vísindafúsk fyrirtækjanna var látið óátalið og jafnvel gengið svo langt að panta falsrannsóknir til að blekkja lærðan og leikan. Þó létu ekki allir blekkjast og dómstólar hafa krafist þess, að leynileg rannsóknagögn væru opinberuð.

Heilbrigðisstarfsmenn mótmæla

Um þessar mundir mótmæla 17.000 heilbrigðisstarfsmenn og vísindamenn vísindafúski og óheilindum í sambandi við bóluefnin eða lyfin. Óheilindin taka m.a. til útskúfunar og þöggunar vísindamanna og annarra, sem gert hafa athugasemdir við gerræði yfirvalda og fyrirtækja.

Meðan stendur á málarekstri fyrir dómstólum hrannast upp tilkynningar um líklegar aukaverkanir hjá heilbrigðisyfirvöldum – þó líklega ekki nema að hámarki tíundi hluti þeirra. Sömu yfirvöld leggja sig yfirleitt í líma við að hafna orsakasambandi tilkynntra kvilla við bólusetningar.

En blaðamenn Exposé hafa brotið til mergjar opinberar tölur í nokkrum löndum og komist að því, að í kjölfar bólusetninga væri hlutfallsaukning alnæmistengdra kvilla, krabbameina og sýkinga, á bilinu 1.145% til 33.715%.

Hálf milljón látist vegna bóluefnanna í Bandaríkjunum

Samkvæmt könnun áhugamannsins og töluvtæknijöfurins, Steve Kirsch, gæti um hálf milljón manna hafa látið lífið í þessari „bólusetningarhelför“ í Bandaríkjunum. Aðferðinni er lýst í kræktri grein. Þar er miðað við svonefnd Bradford-Hill skilmerki um samband bólusetninga og fylgikvilla. Sjálfur vísar hann til umfangsmikilla, hlutlausra rannsókna, þar sem niðurstöður eru nær samhljóma; þeim mun oftar, sem sprautað er, því meira aukast líkur á heilsufarslegum skakkaföllum og andláti.

Nú virðist sem verstu spár óháðra sérfræðinga hafi ræst; áunnið alnæmisheilkenni (aquired immunodeficiency syndrome). Þrátt fyrir reynslu af varasömum lyfjunum (bóluefnum), afhjúpun vísindafúsks og allra handa áróðurs, óheilinda og leynimakks, halda yfirvöld áfram að bólusetja fólk og meira að segja mæla með því.

Grein Arnars með heimildum má sjá hér.

Skildu eftir skilaboð