Forsætisráðherra skipar starfshóp gegn hatursorðræðu

frettinInnlendar3 Comments

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp gegn hatursorðræðu (e. hate speech) til að bregðast við vísbendingum um vaxandi hatursorðræðu í íslensku samfélagi. Forsætisráðherra lagði fram minnisblað þess efnis í ríkisstjórn á föstudag.

Meginhlutverk hópsins verður að skoða hvort stjórnvöld skuli setja fram heildstæða áætlun um samhæfðar aðgerðir stjórnvalda gegn hatursorðræðu. Í því skyni verður starfshópnum falið að gera tillögur um útfærslu á aðgerðum sem miða að því að vinna gegn hatursorðræðu í íslensku samfélagi, til dæmis í formi vitundavakningarherferðar og/eða annarra aðgerða. Starfshópurinn mun hafa samráð við hagsmunasamtök í vinnu sinni.

Unnið verður að því að ná fram samhæfðum aðgerðum gegn hatursorðræðu m.a. vegna  kynþáttar, litarháttar, þjóðernisuppruna, kynhneigðar og kynvitundar með heildstæðri nálgun. Er slíkt talið mikilvægt, m.a. til að stuðla að virkri þátttöku allra í íslensku samfélagi og að allir geti þar notið eigin atorku, þroskað hæfileika sína og notið sama athafnafrelsis og tjáningarfrelsis sem og frelsis til heilbrigðs lífs óháð kynþætti, kynhneigðar o. fl.

Í starfshópnum verða fulltrúar frá dómsmálaráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, mennta- og barnamálaráðuneyti, embætti ríkislögreglustjóra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Jafnréttisstofu. Auk þess verða fulltrúar skipaðir af forsætisráðherra án tilnefninga.

3 Comments on “Forsætisráðherra skipar starfshóp gegn hatursorðræðu”

  1. Heimildir herma að Abdulla al Jersiery sérlegur ráðgjafi Talibana og heiðursgestur Davos ráðstefnunnar í ár muni heimsækja Íslands fljótlega. Mun hann ráðleggja starfshópnum og einnig halda opin fyrirlestur í Höfða sem ber yfirskriftina „I hate free speech and you should too.“ Léttar veitingar verða í boði ungra jafnaðarmanna og Siðmenntar.

Skildu eftir skilaboð