„Slegist um apabóluefnið“ segir sóttvarnalæknir – „ný útgáfa með minni aukaverkunum“

frettinInnlendar1 Comment

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir í samtali við mbl.is að bóluefnið sem nota eigi við apabólunni muni koma til landsins en ekki er vitað hvenær og hversu mikið magn.

„Við erum að kaupa en þetta er allt í gegn­um Evr­ópu­sam­bandið því það er nátt­úru­lega sleg­ist um þessi bólu­efni. Evr­ópu­sam­bandið hef­ur virkað sem miðlæg­ur aðili varðandi þetta bólu­efni sem er fá­an­legt. Það er nátt­úru­lega til í tak­mörkuðu upp­lagi. Við mun­um fá bólu­efni líka,“ seg­ir Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir í sam­tali við mbl.is. Ekki er vitað um fjölda skammta sem mun ber­ast til Íslands en hann tel­ur að það muni taka mið af höfuðtölu Íslands.

Þórólfur sagði að til væru bóluefni gegn bólusótt á landinu en þeim fylgdu miklar aukaverkanir en nú væri komið breytt og betri útgáfa:

„Þeim bólu­efn­um er unnt að beita gegn apa­bólu­veirunni. „Það eru mikl­ir eig­in­leik­ar sam­eig­in­leg­ir með bólu­sótt og apa­bólu­veirunni. Þetta er sama gerð af veiru, þó hún sé miklu væg­ari, apa­bólu­veir­an, held­ur en bólu­sótt. Bólu­efn­in virka gegn báðum þess­um veir­um,“  sagði Þórólfur.

En bóluefnið við bólusótt hefur haft hvað mestu tengslin við hjartavöðvabólgu samkvæmt upplýsingum á vef  National Library of Medicine (NLM), þ.e.a.s af öllum bóluefnum sem notuð eru. Upplýsingarnar á NLM eru frá 2018 og þá var ekki búið að taka Covid-bóluefnið  í notkun sem virðist valda fleiri tilfellum af hjartabólgum en sagt var í upphafi, samkvæmt Lyfjastofnun Svíþjóðar.

One Comment on “„Slegist um apabóluefnið“ segir sóttvarnalæknir – „ný útgáfa með minni aukaverkunum“”

  1. Skyldi vera búið að kanna hvort Ivermectin virki á þennan apabóluvírus.? Er ekki í lagi með að bíða með bólusetningar til almennings og panta fyrir þennan litla hóp sem er í mestri áhættu?

Skildu eftir skilaboð