Rakel, Þóra og pása Aðalsteins frá RÚV

frettinPáll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment

Eftir Pál Vilhjálmsson kennara og blaðaman:

Aðalsteinn Kjartansson hætti skyndilega á RÚV föstudaginn 30. apríl 2021 og hóf störf samdægurs á Stundinni. Þrem dögum síðar var Páli skipstjóra byrlað og sími hans afritaður á Efstaleiti. Frá RÚV fóru gögnin á Stundina og Kjarnann til birtingar.

Daginn sem Aðalsteinn hafði vistaskipti skrifaði Rakel Þorbergsdóttir þáverandi fréttastjóri RÚV á samfélagsmiðli:

Kærar þakkir fyrir eðal samstarf og þá frábæru vinnu sem þú vannst með okkur í Kveik. Þín verður sárt saknað en ég ætla að leyfa mér að vona að RÚV „pásan“ verði stutt. Gangi þér allt í haginn í nýjum verkefnum, veit að þú átt eftir að halda áfram að blómstra sem fréttamaður og samfélagsrýnir.

Yfirmaður Aðalsteins lítur svo á að hann sé í sérverkefni um stundarsakir og komi aftur á höfuðbólið eftir vel unnið dagsverk á hjáleigunni. Þá segir Rakel Aðalstein „samfélagsrýni“. Sérstakur titill á þann sem tekur að sér að koma stolnum gögnum í umferð. Enginn lofar vasaþjóf snör handtökin og kallar hann skáta. Í séríslenskum blaðamannaheimi eru glæpir aftur verðlaunaðir.

Í tilræðinu gegn Páli skipstjóra voru verkaskiptin þau að RÚV var miðstöðin en Kjarninn og Stundin sáu um dreifingu, birtu fréttir úr síma Páls. Í kjölfarið var fréttastofa RÚV ræst út og látin reka hljóðnemann upp í þingmenn og ráðherra til að fordæma. Allt gekk þetta eftir. Nú standa þingmenn og ráðherrar eins og þursar; vissu ekki að líkamsárás með byrlun og gagnastuldur var vinnulag blaðamanna. Í ofanálag misnotuðu blaðamenn andlega veika konu og stunduðu stafrænt kynferðisofbeldi. Selskapur með blaðamönnum RSK-miðla skilur eftir óbragð.

Daginn sem Stundin og Kjarninn birtu fyrstu fréttirnar, samkvæmt skipulagi, þann 21. maí í fyrra, deildi Þóra Arnórsdóttir á RÚV frétt Aðalsteins á Stundinni á einkareikningi sínum á Fésbók með eftirfarandi athugasemd:

Mér er eiginlega þvert um geð að deila þessu. En stundum þarf að gera fleira en gott þykir.

Þóra þykist koma af fjöllum, saklaus áhorfandi að svakalegum fréttum. Í reynd var RÚV miðstöð glæpsins. Sjálf var Þóra í reglulegum samskiptum við andlega veika konu sem byrlaði Páli, stal síma hans og lét í hendur blaðamanna, samkvæmt skipulögðu ráðabruggi.

Eins og nærri má geta eyddi Þóra færslunni á Fésbók sinni eftir að lögreglan komst á sporið. En í skýrslum lögreglunnar er skjáskot af færslunni.

Rakel hætti sem fréttastjóri RÚV um áramót. Aðalsteinn og Þóra eru sakborningar auk tveggja blaðamanna Kjarnans. Ákærur í RSK-sakamálinu eru væntanlegar á næstu dögum.

Allur þorri fjölmiðla þegir um afhjúpun á verðlaunuðum glæpum blaðamanna RSK-miðla. Í næstu viku kemur alþingi saman. Þar sitja nokkrir þingmenn sem höfðu uppi stór orð í fyrravor og tóku undir með blaðamönnum er stunduðu glæpi á bakvið tjöldin. Munu þeir líka þegja?

Skildu eftir skilaboð