Báknið blæs út eins og óstöðvandi blaðra

frettinGeir Ágústsson, PistlarLeave a Comment

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um mikla fjölgun opinberra starfsmanna undanfarin ár og þá sérstaklega undanfarin tvö ár (sveitarfélögin að vísu ekki tekin fyrir). Skattgreiðendur hljóta að finna til í veskinu þegar þeir sjá þessa fjölgun á línuriti.

Á þessu eru auðvitað ýmsar skýringar. Heilbrigðiskerfið þarf að stækka með fjölgun landsmanna og ferðamanna. Sífellt fleiri sérþörfum þarf að sinna, svo sem í skólum og víðar. Heimurinn er að verða svo flókinn að núna þarf þrjá lögfræðinga þar sem einn dugði áður. Og svo framvegis og framvegis.

Það er því ánægjulegt að sjá að hjá skrifstofu Alþingis sé nú verið að leita að sérfræðingi í alþjóðadeild þingsins (sem er deild sem ég vissi ekki að væri til og er ósýnileg á skipuriti skrifstofu Alþingis).

Viðbúið er að margir sæki um enda í boði að ferðast mikið ókeypis.

Sérfræðingar deildarinnar veita utanríkismálanefnd og alþjóðanefndum faglega aðstoð og ráðgjöf, m.a. á sviði alþjóðamála, við undirbúning fyrir þátttöku í alþjóðlegum fundum, gagna- og upplýsingaöflun og undirbúning fyrir alþjóðlega þingmannafundi sem haldnir eru á Íslandi. Starfið er fjölbreytt og krefjandi í lifandi starfsumhverfi og því fylgja umtalsverð ferðalög.

Þetta er vissulega ritarastarf en krefst meistaragráðu og því örugglega vel borgað og væntanlega verður ekkert mál að finna réttu manneskjuna enda sérstaklega tekið fram að starfið henti „öllum kynjum“ og þarf því engum að finnast viðkomandi vera skilinn útundan.

Opinberir starfsmenn sem kjósa flokka sem vilja stækka báknið: +1
Fjöldi á atvinnumarkaði sem greiðir skatta til að halda úti hinu opinbera: -1

Allt eins og það á að vera.

Skildu eftir skilaboð