Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur svarað grein Þórðar Snæs Júlíussonar á vefsíðunni Kjarnanum frá því í morgun. Þórður segir að Bjarni hafi haft skoðun á fréttaflutningi af rannsókn lögreglunnar fyrir norðan og vill Þórður meina að athugasemdir Bjarna séu grafalvarlegar og fordæmalausar.
Fyrr í dag svaraði einnig Páll Steingrímsson skipstjóri skrifum Þórðar varðandi lögreglurannsóknina.
Pistill Bjarna á Facebook er svohljóðandi:
„Þórður Snær Júlíusson sér nú ástæðu til að ítreka athugasemdir sínar við því að ég hafi haft skoðun á fréttaflutningi af lögreglurannsókn norður í landi. Athugasemdir mínar segir hann hafa verið fordæmalausar og grafalvarlegar.
Ég verða að lýsa furðu á þessum skrifum. Sorglegt er hve langt frá kjarna máls ritstjóri Kjarnans er kominn. Hann sér óvin í mér og stillir málinu þannig upp að annað hvort sé maður með blaðamönnum eða lögreglunni í liði. Hvers konar furðuskrif eru þetta?
Ég ætla eingöngu að gera stuttar athugasemdir:
1. Ég benti á að fréttir af málinu byggðust að mestu á getgátum um það hvers konar brot lögreglan væri að rannsaka. Stuttu síðar komu upplýsingar fram sem sýndu að forsendur fréttaflutnings af málinu, sérstaklega á RÚV, voru rangar. Sama gildir um ályktun félaga blaðamanna og fréttamanna.
2. Ég benti á að jafnvel þótt blaðamenn njóti ákveðinnar verndar að lögum þýddi það ekki að þeir gætu skorast undan skyldu til að mæta í skýrslutöku. Í fréttum var helst rætt við lögmenn sem höfnuðu þessum skilningi og mjög einhliða mynd var dregin upp af lagalegri stöðu málsins. Allt byggt á getgátum um efni máls. Í millitíðinni hefur Landsréttur staðfest í afdráttarlausum úrskurði að lögreglan mátti boða blaðamennina í skýrslutöku. Þeir hafa nú allir mætt til skýrslugjafar samkvæmt fréttum. Framvindan sem sagt nákvæmlega sú sem ég taldi að lögin gerðu ráð fyrir. Þvert á allt það sem sagt var í fréttum um málið.
Þetta eru samandregið helstu staðreyndir þess sem ég var að fjalla um. Ég var fyrst og fremst að biðja um meira jafnvægi í fréttum og vönduð vinnubrögð. Þá taldi ég umfjöllun um lagalega stöðu málsins á villigötum. Kannski mættu þeir sem fjölluðu um málið læra eitthvað af því hvernig úr hefur spilast. Hvernig málið var meðhöndlað á þeim tíma sem þeir einir sem boðaðir höfðu verið til skýrslutöku fengu að leggja upp allar forsendur fréttaflutnings.
Ég er hvorki í liði með lögreglunni eða í liði gegn þessum blaðamönnum. Ef ég er í einhverju liði þá er ég í liði með lögunum. Með lögum skal land byggja.
P.s. Fyrir sérlega áhugasama:
Með eftirfarandi orðum var málflutningi blaðamannanna, um að þeir ættu ekki að mæta í skýrslutöku því þeir nytu sérstakrar vendar að lögum, vísað frá dómi með úrskurði Landsréttar:
"Af öllu framangreindu leiðir að vald dómstóla til að kveða á um lögmæti rannsóknarathafna lögreglu í skilningi 2. mgr. 102. gr. laga nr. 88/2008 nær eingöngu til formlegra atriða, einkum að því er varðar gildi ákvarðana lögreglu. Vald dómstóla í þessum efnum nær á hinn bóginn ekki til þess að leggja við upphaf rannsóknar efnislegt mat á atriði sem horfa kunni til sýknu eða refsileysis sakbornings áður en ákæra hefur verið gefin út, gefa fyrirmæli til lögreglu um að rannsókn skuli hætt af efnislegum ástæðum á þessu stigi eða taka á þessu stigi afstöðu til annarra atriða er varða blaðamenn sérstaklega og vernd heimildarmanna þeirra.
„Að öllu þessu gættu, og þar sem ekkert hefur komið fram í málinu um að réttra formlegra aðferða hafi ekki verið gætt þegar lögregla tók ákvörðunum að hefja rannsókn sína á hendur varnaraðila, er óhjákvæmilegt að vísa málinu frá héraðsdómi," segir Bjarni.