Eftir Pál Vilhjálmssson kennara og blaðamann:
Eva Hauksdóttir réttargæslumaður Páls skipstjóra Steingrímssonar sendi Fréttablaðinu kvörtun vegna drottningarviðtals við Helga Seljan og Þóru Arnórsdóttur á Fréttavaktinni. Fréttamaðurinn sem stýrði viðtalinu er tengdur fjölskylduböndum sakborningi í RSK-sakamálinu. Þar er Þóra einnig sakborningur. Málið snýst m.a. um byrlun, símastuld, brot á friðhelgi og stafrænt kynferðisofbeldi. Eva skrifar
Brot það sem Þóra Arnórsdóttir og fleiri blaðamenn eru grunaðir um, felst í því að hafa í heimildarleysi skoðað, afritað og dreift gögnum af síma umbjóðanda míns. Síminn var tekinn frá honum á meðan hann lá meðvitundarlaus á gjörgæslu, eftir að hafa verið byrlað svefnlyf. Rannsókn lögreglu beinist m.a. að því hvort sakborningar í málinu hafi vitað um þessa lyfjabyrlun og hverjir hafi undir höndum gögn sem varða einkamál umbjóðanda míns
Eva gagnrýnir afstöðu blaðamanns Fréttablaðsins, Björns Þorlákssonar, sem ítrekað gefur til kynna í viðtalinu að hann sé hjartanlega sammála sakborningnum Þóru. Eva segir lögreglurannsóknina snúast
um það hvort blaðamenn hafi tekið við, afritað og sent sín á milli persónuleg gögn sem varða einkalíf eigandans og fjölda manns sem haft hafa samskipti við hann í gegnum símann. Umbjóðandi minn veit ekki hvar gögn sem varða einkasamtöl hans, t.a.m. við dætur sínar, aðra fjölskyldumeðlimi og lækni er niðurkomin. Hann veit ekki hverjir hafa aðgang að þessum gögnum, afritum af greiðslukortum hans og ýmsum öðrum persónulegum gögnum sem vistuð voru á símanum. Hann veit ekki hvort einkalíf hans er vistað á tölvu á skrifstofum Kjarnans, usb lykli í stofuskáp heima hjá Þóru Arnórsdóttur eða í gagnasafni á netinu. Umfjöllun Fréttavaktarinnar sniðgekk algerlega þennan kjarna málsins.
Þá bendir réttargæslumaður Páls á að það „Það samræmist augljóslega ekki kröfum um vandaða upplýsingaöflun að veita sakborningi í lögreglurannsókn drottningarviðtal um eigið mál, án þess að gera minnstu tilraun til að kanna rök lögreglu fyrir rannsókninni eða afstöðu brotaþola.“
Í niðurlagi kemur þessi athugasemd frá Evu:
Til að kóróna allt saman er stjórnandi þáttarins svo tengdur fjölskylduböndum þeim sakborningi sem kvaðst í sjálfstæðri frásögn í lögregluyfirheyrslu hafa sett lyf í drykk brotaþola.
Áður en Eva skilaði inn til Fréttablaðsins kvörtun hafði lögmaður Örnu McClure gagnrýnt drottningarviðtalið á Fréttavakt Fréttablaðsins. Arna átti í samskiptum við Pál sem voru gerð opinber af RSK-miðlum. Og hver haldið þið að hafi skrifað fréttina um þá gagnrýni? Jú, enginn annar en Björn Þorláksson, sem tók viðtalið og er tengdur sakborningi fjölskylduböndum.
Vinnubrögð blaðamanna og fjölmiðla í RSK-sakamálinu eru eins ófagleg og hugsast getur. Blaðamenn og fjölmiðlar keppast við að slá skjaldborg um vini, félaga og fjölskyldutengda sem eru sakborningar. Grundvallarreglur um sjálfstæði, vönduð vinnubrögð og hlutlægni eru þverbrotnar.
Blaðamenn og fjölmiðlar segjast starfa í þágu lýðræðis og almannahags, fá fyrir það ríkisstyrk. Í reynd eru blaðamenn og fjölmiðlar eins og mafía sem heldur hlífiskildi yfir félögum sínum sem eru sakborningar í lögreglurannsókn.
Ísland stendur ekki undir nafni sem lýðræðisríki þegar fámenn blaðamannamafía stjórnar fjölmiðlaumræðunni og sýnir sakborninga í alvarlegu afbrotamáli sem saklausa engla.
2 Comments on “Helgi og Þóra í viðtali blaðamanns tengdum sakborningi”
Hvar endar þetta mál eiginlega? Ég veit hinsvegar alveg hvar ég stend í minni skoðun og þessir svokallaðir blaðamenn hafa enga vorkun af minni hendi frekar vonast ég eftir duglegri rassskellingu og tíma bakvið slá.
Málinu endar með að vera vísað frá, en það hindrar ekki skæruliðadeild Samherja í að nudda almenning upp úr þessu máli endalaust.
En ekkert heyrist um rannsókn á glæpum Samherja … og Namíbíumenn sendir endurreka þegar þeir koma til Íslands og falast eftir stuðningi frá Íslenskum yfirvöldum … Völd Samherja eru mikil í þessu landi.