Nokkrir merkir sósíalistar og þjóðernissinnar

frettinJón Magnússon, Pistlar1 Comment

Eftir Jón Magnússon hæstaréttarlögmann:

Formaður Miðflokksins gagnrýnir réttilega að kennari í Verslunarskóla Íslands skuli vera með námsefni þar sem hann setur Sigmund Davíð í hóp með Hitler og Mússólíni undir yfirskriftinni "nokkrir merkir þjóðernissinnar"

Framsetningin kennarans er pólitískur áróður ætlaður til að gera lítið úr Sigmundi Davíð og stimpla hann sem öfgamann sem samsami sig best með þeim Adolf og Benito. Það er fordæmanleg. Eðlilegt væri að viðkomandi kennara væri gert að taka pokann sinn, þar sem hann er ekki fær um að miðla hlutlægri fræðslu til nemenda.  

Hægt hefði verið að setja upp glæru með nokkrum þekktum íslenskum þjóðernissinnum. Þá væri Sigmundur Davíð í hópi með Skúla fógeta, Jónasi Hallgrímssyni, Jóni Sigurðssyni forseta, Bjarna frá Vogi, Bjarna Benediktssyni heitnum fyrrum forsætisráðherra og ýmsum öðrum mætum íslenskum þjóðernissinnum.

Þá hefði Sigmundur Davíð komið út í jákvæðu ljósi, en til þess var leikurinn ekki gerður heldur til að koma þeirri ímynd inn hjá nemendum, að Sigmundur væri galinn hættulegur öfgamaður. Svona áróður í skólum gengur ekki og er mun alvarlegri en meint grín á þrettándagleði í Vestmannaeyjum. Fréttastofa RÚV mun þó ekki fjalla um þetta mál eða kalla til sérfræðing eða sérfræðinga til að lýsa fordæmingu á athæfinu.

Hægt hefði líka verið að stilla upp annarri glæru í námsefni nemenda undir yfirskriftinni. "Nokkrir merkir sósíalistar"

Þar hefðu þá verið nöfn þeirra Adolfs og Benito, sem fyrr ásamt t.d. Katrínar Jakobsdóttur, Kristrúnar Flosadóttur og Gunnars Smára Egilssonar. Hefði kennarinn búið til slíka glæru má telja upp á að fréttastofa RÚV hefði eytt drjúgum fréttatíma í að fordæma tiltækið og skilgreina það fræðilega. 

Hvað sem því líður, þá er svona glórulaus pólitískur áróður í skólum fordæmanlegur og þeir sem slíkt stunda eru ekki hæfir til að vera kennarar.

One Comment on “Nokkrir merkir sósíalistar og þjóðernissinnar”

  1. Kennslan í íslenskum skólum er búin að vera svona í marga áratugi, Mannkynsagan er samin og sniðin fyrir rétta aðila og svo er heilaþvotturinn notaður til að tryggja sömu valdaöflin í samfélaginu.
    Þessir 63 starfsmenn sem eiga að vinna fyrir land og þjóð eru vita gagnlausir að öllu leiti
    þessi hópur er meira upptekinn að þjóna hagsmunum yfirvaldsins (bandamannana) fyrir vestan álinn, allt saman hugmyndasnauðir fáfróðir einstaklingar sem eru meira í því að sækja sér vinsældir (læk) enn að vinna að skynsemi með sjálfstæðri heilbrigðri ákvarðatöku.

Skildu eftir skilaboð