„Hef ekki hugmynd um hver þessi kona er“

frettinDómsmál, Erlent1 Comment

Don­ald Trump fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti hef­ur verið fund­inn sek­ur um kyn­ferðis­brot gegn blaðakonunni E. Jean Carroll. Þetta er niðurstaða kviðdóms í New York í einka­máli hennar gegn Trump. Hann var dæmdur til að greiða Carroll fimm millj­ón­ir banda­ríkja­dala.

Hann var ekki fundinn sekur um nauðgun, heldur um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar. Carroll kærði Trump fyrir að hafa nauðgað sér árið 1996 í verslunarmiðstöð í Manhattan.

Trump sagði í samtali við Fox News Digital að hann ætli að áfrýja dómnum og sagðist ekki hafa nokkra einustu hugmynd um hver konan væri auk þess sem hann sagði dóminn svívirðilegan og vera áframhald af mestu pólitísku nornaveiðum í sögunni.

One Comment on “„Hef ekki hugmynd um hver þessi kona er“”

  1. Enda demókrata dómari … þannig það mátti búast við þessu..

Skildu eftir skilaboð