Bólusetningaherferð 5-11 ára barna er hafin í Ísrael og fékk forsætisráðherra landsins ungan son sinn til að fara í bólusetningu fyrir framan myndavélar í kynningar-og hvatningaskyni. Upptakan af viðburðinum má sjá hér neðar en svona eru orðaskipti feðgana nokkurn veginn:
Ráðherrann segir við son sinn: „Viltu útskýra fyrir öllum hvers vegna það er mikilvægt að fara í bólusetningu.“
Sonurinn: „Það er mikilvægt að fara í bólusetningu svo börn verði ekki veik af kórónuveirunni og svo þau smiti ekki foreldra sína og annað fullorðið fólk sem gæti dáið.“
Ráðherrann: ,,Hvers vegna samþykktirðu að koma hingað og láta mynda þig?“
Sonurinn: ,,Svo að önnur börn skilji að þau eigi að fara í bólusetningu.“
Ráðherrann bætti við: ,,Svo þau verði ekki hrædd, ert þú hræddur?“
Sonurinn: ,,Svolítið.“
Ráðherrann: ,,Það er allt í lagi að vera svolítið hræddur. Þetta verður búið áður en það byrjar.“
Hjúkrunarkona kemur þá með sprautuna.
Ráðherrann við soninn: ,,Ekki spenna vöðvann, vertu rólegur, viltu ís eftir á?“
Sonurinn: ,,Vá hvað þetta var lítið mál... ég fann ekkert.“
Ráðherrann: ,,Var þetta nokkuð vont...viltu ekki segja hinum krökkunum það?“
Sonurinn: ,,Þetta var ekkert vont, það sýnist bara vera það.“
Forsætisráðherrann stendur upp: ,,Í dag erum við að hefja allsherjar bólusetningaherferð barna á landsvísu, í fyrsta lagi til að verja börnin okkar, foreldra þeirra og alla í Ísrael. Davíð var að fá sína bólusetningu." ,,Var það nokkuð vont?“ spyr ráðherrann son sinn aftur.
Að lokum sagði forsætisráðherrann: ,,Ég bið alla foreldra í Ísrael að koma með börn sín í bólusetningu. Hún er örugg og ver börnin okkar.“