Ástralska dagblaðið Sydney Morning Herald upplýsti að stjórnvöld í Ástralíu eigi von á skaðabótakröfum upp á 50 milljónir AUD (tæplega 5 milljarðar ISK). Skaðabæturnar tengjast Covid-19 bólusetningaherferðinni, þar sem þúsundir Ástrala hafa sótt um bætur vegna heilsuskaða í kjölfarið.
Hátt í 10.000 Ástralir hafa sótt um bætur sökum tekjutaps eftir að hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús vegna alvarlegra aukaverkana af bóluefninu.
Fjárhæð bóta eru frá 5.000 AUD (tæplega 500 þúsund ISK)per umsækjanda sem þýðir að ef allar kröfur verða samþykktar mun reikningurinn hljóða upp á 50 milljónir AUD.
Yfir 79.000 tilfelli um skaðlegar aukaverkanir hafa borist heilbrigðisyfirvöldum í landinu. Skráð hafa verið 288 tilfelli um hjartabólgur í kjölfar Pfizer bólusetninga, ásamt 160 tilfelli af segamyndun með blóðflagnafæð (thrombosis with thrombocytopenia) sem er storknunarsjúkdómur rakinn til AstraZeneca bóluefnisins.
Til að eiga rétt á bótum þarf umsækjandinn þó að hafa dvalið yfir a.m.k. eina nótt á sjúkrahúsi.
Hér neðar er sjónvarpsfrétt og viðtal við Ástrala sem greindist með gollurshússbólgu í kjölfar bólusetningar en dvaldi aldrei yfir nótt á spítala og á þar af leiðandi ekki rétt á skaðabótum.
One Comment on “Yifr 10 þúsund Ástralir hafa sótt um skaðabætur eftir bóluefnaskaða”
Þetta er flott, falsfréttamiðill að fara rangt með staðreyndir. Gerið betur en þetta og hættið að rugla í fólki.
Inaccurate as presented in Tweet. 79,000 is the number of folks who self-reported to TGA a potential side effect they had in the 30 days post vax that they SUSPECT may be linked (any from minor headache to near death), only a tiny % of which are actually both linked & serious.