22. janúar á síðasta ári greindi mbl.is frá því að undanþáguávísunum lyfja sem innihalda ivermectin hafði fjölgað töluvert í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Sjö undanþáguávísanir höfðu borist í janúar 2021 vegna Covid þegar fréttin var skrifuð þó aðeins tæpur mánuðir væri liðinn af árinu.
Í þremur tilfellum höfðu undanþáguávísanir með Covid-19 sem ábendingu verið samþykktar en í tveimur tilvikum var um að ræða lækna sem ávísuðu lyfinu á sjálfa sig.
Frétt mbl.is segir að þetta hafi komið fram í svari Lyfjastofnunar við skriflegri fyrirspurn fjölmiðilsins um ivermectin, en þar segir einnig að stofnuninni hafi borist tvöfalt fleiri undanþáguávísanir vegna ivermectin árið 2020 en árið þar á undan.
Í frétt mbl.is segir einnig að fram hafi komið í svari Jóns Magnús Jóhannessonar deildarlæknis á Landspítala við spurningu á Vísindavefnum ,,hafi notkun sníkjudýralyfsins ivermectin gegn Covid-19 aukist verulega á síðustu mánuðum, gjarnan án þess að lyfið hafi verið samþykkt til slíkrar notkunar. Lyfið hefur fengið aukna athygli nýlega sem möguleg meðferð gegn Covid-19. Ekki er hægt að staðfesta gagnsemi lyfsins með vissu fyrr en stærri og ítarlegri rannsóknir á því hafa farið fram.“
Fréttin hefur sent fyrirspurn til Lyfjastofnunar um uppfærðar tölur á undanáguávisunum fyrir lyfið.
Ný og víðamikil rannsókn frá Brasilíu
Út er komin ný og viðamikil rannsókn sem gerð var á öllum íbúum í borginni Itaijí í Brasilíu og sýnir með ótvíræðum hætti að ivermectin dragi verulega úr veikindum og andlátum af völdum Covid sjúkdómsins og gæti þar með dregið mikið úr álagi á heilbrigðiskerfið vegna sjúkdómsins.