Ég verð að segja að ofsóknir á hendur Bjarna Benediktssyni taka út yfir allan þjófabálk. Ég hef gagnrýnt Bjarna Ben, einkum fyrir að verja ekki nógsamlega fullveldi þjóðarinnar og yfirgefa einyrkja Sjálfstæðisflokksins; raunar sama og gerst hefur meðal evrópskra borgaraflokka.
Hatursorðræða fæst þrifist vegna þess að falsmiðlar okkar taka að sér að bera út lygi ómerkilegra pólitíkusa í garð Bjarna um söluna á Íslandsbanka. Vissulega fengu þeir blóð á tönn með óskiljanlegum kaupum föður Bjarna Ben og siðlausum kaupum söluaðila. Í annað sinn sem heiftúðug hatursorðræða í garð Bjarna Ben hefur farið út fyrir allt velsæmi en menn muna hýsteríuna þegar Guðni Th. forseti veitti kynferðisbrotamanni uppreisn æru og hafði Benedikt gamli mælt með manninum. Meðan Guðni Th. sat sæll á Bessastöðum fór „góða fólkið“ hamförum gegn Bjarna Ben. Hversu galið var það?