Úkraína eru sigurvegarar Eurovision-söngvakeppninnar í ár. Úkraína hlaut alls 631 stig. Eftir stigagjöf dómnefnda leit ekki út fyrir að Úkraína myndi berjast um sigurinn en Bretland og Svíþjóð höfðu þá lengi skipað efstu tvö sætin.
Þegar stig áhorfenda komu í ljós, alls 431 talsins, skaust Úkraína þó langt fyrir ofan Bretland og Svíþjóð.
Alls gat Úkraína mest fengið 468 stig frá áhorfendum í Evrópu. Hefur framlag landsins því mjög víða verið í efsta sæti í símakosningum.