Ólafur G. Flóvenz, jarðeðlisfræðingur og fyrrum forstjóri Íslenskrar orkurannsókna (ÍSOR), telur að landrisið núna undir Reykjanesskaga við Þorbjörn stafi að mestu leyti af kviku en ekki gasi og mögulega hafi kvikustreymi leitað til hliðar í átt að Svartsengi þegar eldgosinu í Fagradalsfjalli lauk í fyrra, frá þessu er greint á mbl.is.
Ólafur bendir á að það sem olli landrisinu fyrir tveimur árum hafi líklega verið uppsafnað gas í kvikugeymi undir Fagradalsfjalli.
„Mér finnst ekki ólíklegt að það sé kvika að safnast saman undir Svartsengi, eða þess vegna undir Sundhnjúkagígaröðinni sem liggur til norðausturs frá Grindavík þar sem að það eru búnir að vera viðvarandi skjálftar í langan tíma,“ en ég tel þetta vera mikil hættumerki um yfirvofandi eldgos, segir Ólafur.
Mestar áhyggjur af Grindavík
Í samtali við mbl.is segir hann að ef eldgos myndi hefjast við Svartsengi þá yrðu Bláa lónið og orkuverið í Svartsengi í mikilli hættu vegna hraunrennslis. Hann segist þó hafa mestar áhyggjur af Grindavík sem hann segir standa á hrauni sem rann úr Sundhnjúkagígum fyrir um tvö þúsund árum, en syðstu gígarnir eru nánast við ystu mörkin á byggðinni í Grindavík.
„Það segir manni bara það að það hlýtur að vera mikil hætta á eldgosi í kringum Grindavík, í Svartsengi og í Eldvörpum við núverandi aðstæður.“