Bláa lónið og orku­verið í Svartsengi í mik­illi hættu vegna hraun­rennsl­is

frettinInnlendarLeave a Comment

Ólaf­ur G. Flóvenz, jarðeðlis­fræðing­ur og fyrr­um for­stjóri Íslenskr­ar orku­rann­sókna (ÍSOR), tel­ur að landrisið núna und­ir Reykja­nesskaga við Þor­björn stafi að mestu leyti af kviku en ekki gasi og mögu­lega hafi kviku­streymi leitað til hliðar í átt að Svartsengi þegar eld­gos­inu í Fagra­dals­fjalli lauk í fyrra, frá þessu er greint á mbl.is.

Ólafur bend­ir á að það sem olli landris­inu fyr­ir tveim­ur árum hafi lík­lega verið upp­safnað gas í kviku­geymi und­ir Fagra­dals­fjalli.

„Mér finnst ekki ólík­legt að það sé kvika að safn­ast sam­an und­ir Svartsengi, eða þess vegna und­ir Sund­hnjúkagígaröðinni sem ligg­ur til norðaust­urs frá Grinda­vík þar sem að það eru bún­ir að vera viðvar­andi skjálft­ar í lang­an tíma,“ en ég tel­ þetta vera mik­il hættu­merki um yf­ir­vof­andi eld­gos, segir Ólafur.

Mest­ar áhyggj­ur af Grinda­vík

Í sam­tali við mbl.is seg­ir hann að ef eld­gos myndi hefjast við Svartsengi þá yrðu Bláa lónið og orku­verið í Svartsengi í mik­illi hættu vegna hraun­rennsl­is. Hann seg­ist þó hafa mest­ar áhyggj­ur af Grinda­vík sem hann seg­ir standa á hrauni sem rann úr Sund­hnjúkagíg­um fyr­ir um tvö þúsund árum, en syðstu gíg­arn­ir eru nán­ast við ystu mörk­in á byggðinni í Grinda­vík.

„Það seg­ir manni bara það að það hlýt­ur að vera mik­il hætta á eld­gosi í kring­um Grinda­vík, í Svartsengi og í Eld­vörp­um við nú­ver­andi aðstæður.“

Ólafur G. Flóvenz

Skildu eftir skilaboð