Mikill var viðbúnaðurinn á Akureyrarflugvelli í hádeginu vegna komu einkaflugvélar sem lenti þar. Samkvæmt mbl.is er um að ræða einkavél Marks Zuckerbergs, forstjóra Meta, móðurfyrirtækis Facebook og Instagram.
Í frétt Morgunblaðsins kom fram að sjónarvottar hafi séð brynvarðra bíla á svæðinu. Haft er eftir Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúa Isavia, að einkaflugvél væri að lenda á flugvellinum og staðfest hafi verið að um þekktan einstakling væri að ræða.
Þá segir einnig að fyrr í dag hafi sést á ratsjám hvernig þyrla tók á loft frá Deplum í Fljótum og flogið til Akureyrarflugvallar.
Á Deplum Farm er rekin lúxusferðaþjónusta sem er í eigu Eleven Exprerience en þjónustan tók formlega til starfa árið 2016.
Zuckerberg skrifaði athugasemd undir auglýsingu frá Inspired by Iceland í nóvember sl. að hann hlakki til að heimsækja „Icelandverse“ bráðlega og er því ljóst að hann hefur látið verða af heimsókninni.
Í auglýsingunni fór leikarinn Jörundur Ragnarsson með hlutverk manns, sem heitir Zack Mossbergsson og líkist mjög til Zuckerberg, og var að kynna „Icelandverse.“
Hallur Hallsson blaðamaður kom við á Akureyrarflugvelli og greinir hann einnig frá komunni með flugvélina í bakgrunni, sem má sjá hér að neðan.