Lögreglan sendi frá sér tilkynningu á fjórða tímanum. Þar segir að lík hafi fundist í fjörunni norðan Eiðsgranda í Reykjavík. Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo .
Lögreglan er með töluverðan viðbúnað á svæðinu, á staðnum er nokkur fjöldi lögreglumanna og bæði merktir og ómerktir lögreglubílar, ásamt sjúkrabílum. Einnig er notast við dróna.