Samfélagsmiðlar eiga fullt í fangi með að stjórna umræðunni og reyna að gæta þess að notendur fái „réttar“ upplýsingar og þá sérstaklega í tengslum við Covid-19, svokölluð bóluefni og bóluefnaskaða, stríðið í Úkraínu og loftslagsmál.
Miðlarnir hafa lokað á fjölda manns, tímabundið eða varanlega, þar á meðal sérfræðinga, vísindamenn og aðra sem ekki eru sömu skoðunar og stjórnendur samfélagsmiðlanna. Frægasta dæmið var þegar lokað var fyrir fullt á allt á fyrrum Bandaríkjaforseta, Donald Trump.
Twitter lokaði t.d. tímabundið á einn helsta vísindamenn Ísraels sem sagði að tengsl væru á milli apabólufaraldursins og mRNA Covid sprautuefna. Miðillinn skipaði honum að fjarlægja færsluna ellegar yrði aðgangur hans ekki opnaður á ný.
Twitter aðgangi fyrrum vopnaeftirlitsmanns Sameinuðu þjóðanna, Scott Ritter var lokað í vor fyrir „misnotkun og áreiti“ en opnaður aftur um sólarhring síðar. Lokunin átti sér stað eftir að Ritter setti inn færslu um að alþjóðalögreglan í Úkraínu hafi framið fjölda glæpa í Bucha.
Þá lokaði Twitter á bandarísku þingkonuna Marjorie Taylor Greene fyrir að vísa í gagnagrunninn VAERS um dauðsföll eftir Covid bólusetningar.
Lokað á myllumerkið #diedsuddenly
Síðasta útspil Facebook er að loka á myllumerkið "diedsuddenly". En frá því á síðasta ári hefur skyndidauðsföllum fjölgað verulega, t.d. á meðal íþróttamana þar sem aukningin er 1700%. Færslur merktar með myllumerkjum eru vinsælar og auðveldar notendum að finna færslur um tiltekið þema eða umræðuefni. Enn er þó opið fyrir þetta myllumerki á Twitter.
Breskir læknar eru nú að rannsaka hvað gæti valdið þessari auknu tíðni á SADS eða skyndilegum dauðsfallum meðal ungs fólks.