Fjöldahjálparstöð

frettinJón Magnússon, Stjórnmál1 Comment

Jón Magnússon skrifar:

Fjöldahjálparstöð er fínt orð yfir flóttamannabúðir á engilsaxnesku "refugee camp." Þetta verður að gera, þar sem stjórnvöld hafa ekki nein úrræði varðandi móttöku ólöglegra innflytjenda og raunverulegra hælisleitenda. 

Ástæða þess, að við erum lent í þessum ógöngum varðandi hælisleitendur er margþætt. Við stjórnum ekki lengur landamærunum heldur höfum fórnað þeirri yfirstjórn á grundvelli Scengen samstarfs, sem við ættum sem fyrst að segja okkur frá. 

Í annan stað er íslensk löggjöf í málefnum útlendinga og flóttafólks svo og félagsleg aðstoð við þá svo vitlaus, að auðveldara er fyrir ólöglega innflytjendur að koma til Íslands en allra annarra landa í Evrópu. 

Í þriðja lagi er félagslega aðstoðin hér svo rífleg, að hún freistar fólks að koma hingað. 

Í fjórða lagi þá er nánast engum vísað úr landi þó hann sé hér ólöglega og úrskurðir og jafnvel dómar hafi gengið í þá áttina. Þeir sem hafa verið úrskurðaðir eða dæmdir til að fara  halda áfram að vera í landinu og njóta áfram ríkisstyrkja. 

Stefna stjórnmálaelítunnar í málefnum innflytjenda er nú algjörlega sigld í strand og fólk gerir sér í vaxandi mæli grein fyrir því hvaða afleiðingar það hefur þegar þjóð stjórnar ekki lengur landamærum sínum. 

Íslendingar hafa ekki áttað sig á því enn að útlendingastefna stjórnmálaelítunnar bitnar á fólkinu í landinu. Það kemur fram þegar fólk þarf á þjónustu lækna eða hjúkrunarfólks að halda. Það kemur fram í vaxandi húsnæðisskorti, skorti á dagheimilum og erfiðleikum við að láta alla sem hér eru njóta viðunandi skólavistar. 

Svo virðist vera sem stjórnmálaelítan hafi ekki nokkra hugsun á því að bæta lífskjör borgara þessa lands og neiti að horfast í augu við að sömu krónunni verður ekki eytt tvisvar. 

Er ekki mál til komið að við tökum sjálf stjórn á landamærunum og látum af bæði barna- og kjánaskap sem og algjöru óraunsæi í málefnum hælisleitenda. 

One Comment on “Fjöldahjálparstöð”

  1. Það eina sem þarf að gera sér grein fyrir er að, ekki bara í þessu „flóttamanna“- eða „hælisleitenda“tilliti, þá er Ísland er ekki lengur sjálfstætt ríki, heldur eru ALLAR meiriháttar ákvarðanir teknar erlendis, og svo sendar hingað þar sem innfæddum ber að fylgja þeim eftir samstundis og möglunarlaust.

    Þetta mátti glögglega sjá í gervifaraldrinum, þar sem innfæddir í hinum ýmsu löndum voru að framfylgja sömu fyrirmælunum, ekki bara sama dag, heldur á sömu klukkustundinni líka.

    Það er ekki bara á Íslandi sem verið er að leggja bráðamóttökuna í rúst, heldur er nú verið að því vítt og breitt um Evrópu líka. Að því afloknu verður sjálfur spítalinn tekinn af lífi (óþolandi að eitthvert fátækt pakk vaði þar inn og heimti ókeypis þjónustu). Þriðja skrefið er svo að ganga af lífeyrissjóðakerfinu dauðu, og koma öllum þeim fúlgum sem þar hafa safnast fyrir í áranna rás í hendur erlendra „fjárfesta“ (réttara sagt: vogunarsjóða). Frumvarp (eða bráðabirgðalög ef á þarf að halda) um þetta atriði verður lagt fram í Frakklandi á næstu dögum.

Skildu eftir skilaboð