Trommari hljómsveitarinnar Modest Mouse látinn 45 ára

frettinFræga fólkiðLeave a Comment

Jeremiah Green, trommari  og einn af stofnendum rokksveitarinnar Modest Mouse, lést á gamlárskvöld aðeins 45 ára gamall.

Aðeins er vika síðan að móðir hans tilkynnti að Jeremiah hafi skyndilega greinst með 4. stigs krabbamein.

Móðirin sagði ekki hvers konar krabbamein hann væri með, en á jóladag skrifaði hún færslu á Facebook og bað fólk um að senda góða strauma til Greene „sem væri að berjast við 4. stigs krabbamein.“

Hljómsveitin sendi frá sér tilkynningu á Instagram og sagði Jeremiah hafa „lagst til hvílu og bara fjarað út.“

Á gamlárskvöld tilkynnti fjölskyldan síðan um andlát hans.

Skildu eftir skilaboð