F-dýflissa fyrir opin bréf til Alberts & Óla Björns

frettinHallur Hallsson, Pistlar, Samfélagsmiðlar1 Comment

Eftir Hall Hallsson:

Ég hef skrifað gömlum félögum og vinum tvö opin bréf um Úkraínu-stríðið; Alberti Jónssyni fremsta alþjóðafræðingi okkar og Óla Birni Kárasyni þingmanni. Þeir hafa ekki verið í sambandi né svarað en ég efast ekki um að þeir ráði bót á því. Öll umræða er mikilvæg. Ein ríkisskoðun hefur verið grunnur umræðu meginmiðla – samfélags- & fjölmiðla – svo ekki má ræða aðra sviðsmynd en útgáfu Nato. Þegar van der Leyen æðsti kómizar ESB missti útúr sér ummæli um hroðalega útreið úkranska hersins þar sem hún skýrði frá því að yfir 100 þúsund úkranskir hermenn væru fallnir, þá voru ummælin þurrkuð út – nánast á rauntíma. Ég veit ekki til þess að nokkur vestrænn meginmiðill hafi skýrt frá. Þeir leiðrétta ef rangt er. Annað dæmi er hótun Joe Biden 7. febrúar 2022 þess efnis að binda endi á; ‘to end Nordstream‘ gasleiðsluna með garminn Olaf Stolz kanslara sér við hlið. Ritskoðarar hafa verið í yfirvinnu að stroka út og meginmiðlar þagga. Menn leiðrétta ef rangt er.

F-dýflissa: dómur Facebókar

Facebókin hefur sett mig í f-dýflissu og neitað að birta síðara bréf mitt til Alberts og Óla Björns þar sem rifjuð er saga Rússlands og Úkraínu í 500 orðum. Efast einhver um að Stóri bróðir sé í aksjón? Ég birti mynd af Zelinskí forseta undir úlfsöngli; miðaldatákni notað af nazistum Hitlers. Öngull úlfsins hefur verið áberandi í Úkraínu okkar samtíma, notaður af Azov-nazistum. Eftir að stríðið braust út eru meginmiðlar ofurviðkvæmir því ekki má falla kusk á hvítflibba forsetans, né nazíska fortíð úkranskra öfgaafla. Í febrúar í fyrra birti Nato mynd á Twitter af úkraínskum kvenhermanni með nazískan Svartkross – Schwarze Sonne. Myndin átti að vera lofsöngur til kvenna fyrir baráttuna gegn Rússum. Guardian birti sömu mynd á forsíðu. Nato fjarlægði myndina en eðli máls samkvæmt gat Guardian það ekki.

Úlfsöngull Úkraínu

Fortíðar-hreinsun meginmiðla

Hreinsun meginmiðla á nazískri fortíð Úkraínu hefur staðið yfir frá upphafi stríðs. Þeir sem dirfast að véfengja eru jaðarsettir. Svona er komið fyrir Vesturlöndum, samanber meðfylgjandi dóm facebókar og nokkur ummæli meginmiðla fyrir og eftir stríð. Traustvekjandi? Elon Musk hefur rofið þöggunarmúrinn á Twitter, samanber meðfylgjandi ummæli og mynd: Ég er ekki heilaþveginn og með fylgja lógó helstu sökudólga! Sjá má bréf mitt Albert, Óli Björn og ég [ II ] hér á frettin.is.

Færsla Musk

One Comment on “F-dýflissa fyrir opin bréf til Alberts & Óla Björns”

  1. Hér er sannleikurinn um BNA, NATO, Úkrainu og Rússland!
    https://www.youtube.com/watch?v=MEzsMk-NH0A

    Þetta ætti vonandi að hreinsa burt hjá sjálfstætt hugsandi fólki sumar staðhæfingar sem margir eru smitaðir af á Íslandi sem er litað meira af krónísku áróðurs Rússahatri enn sannleika og skynsemi!

Skildu eftir skilaboð