Íslenska karlalandsliðið í handbolta sigraði nú rétt í þessu landslið Portúgal í fyrsta leik sínum á heimsmeistarmótinu í Svíþjóð. Íslandi sigraði með fjögurra marka mun 30-26. Mikill fjöldi Íslendinga var mættur í stúkuna í Kristianstad til að horfa á leikinn.
Ísland er því komið með tvö stig, eins og Ungverjaland. Þrjú efstu liðin í riðlinum fara áfram í milliriðil. Íslenska landsliðið byrjaði betur og var skrefinu á undan til að byrja með og komst tveimur mörkum yfir í fyrsta sinn í stöðunni 4:2 og náði síðan mest fjögurra marka mun í hálfleiknum, 6:2 og 7:3.
3 Comments on “Ísland sigraði sinn fyrsta leik á HM 2023”
Ísland tapaði öðrum leiknum á móti Ungverjum!
Það vantar ekki að í liðinu er fullt af góðum leikmönnum sem eru í fremstu röð í heiminum, enn vandamálið er að þeir eru allir mjög svipaðir leikmenn, það eru engar skyttur í þessu liði, þá er ég að tala um menn sem eru um og yfir tveir metrar á hæð, Gummi hlýtur að hafa vitað af þessu vandamáli þegar hann tók við liðinu þega hann tók við því fyrir nokkrum árum. Þessa menn verðum við að hafa til að geta spilað við hávaxin lið eins og Unverjaland, Spán, Frakkland, Danmörk og svíþjóð. Það er stórir strákar til í deildini hér heima og þurfa að fá tækifæri á næstu árum, auðvitað mun það taka tíma að slípa þá til svo að þeir geti spilað á stóra sviðinu.
Annað sem ég tek eftir í þessum tveimur leikjum er það að Guðmundur notar ekki breyddina í liðinu hann bara keyrir á sömu mönnunum. Ég er hræddur um að árangurinn á þessu móti verði slakur ef hann mun ekki nota þá breydd sem er til staða í hópnum. Þetta lið getur ekki verið ofar enn sjötta sæti án þess að vera með alvöru hávaxnar skyttur í liðinu, það er bara veggur sem við munum lenda á öllum næstu mótum með svona uppbyggingu á liðinu, það er nú bara þannig. Að öðru þá hefði ég í sporum Guðmunda aldrei tekið Aron pálmason með á þetta mót, hann er á niðurleið handboltalega séð og hefur aldrei náð þeim hæðum sem hann hafði hvað varðar hæfileika, og það mjög sjaldan með landsliðinu ef mið eru tekin af hans framkomu er hann ekki neinn leiðtogi, hann er oft hrokafullur í viðtölum, Ég hefði viljað sjá frekar menn eins og Þorstein Leó Gunnarssson fara með á þetta mót.
Þá eru Svíarnir að þagga niður í hæpuðum íslenskum handbolta, þetta er bara staðan í dag á íslenskum handbolta, það er bara þannig, miðað við stöðuna í dag sé ég ekki að Ísland muni spila á hæsta leveli á næstu árum jafnvel áratug, menn sem helda að það geti spilað með eintóma hobbita í út ilínunni (engar skyttur) mun aldrei vera meðal top 10 – 6 nema með einhverri heppni!
Það er magnað að lesa umræðuna um landsliðið hjá þessum svo kðlluðu sérfræðingum heima, upphafningin var svo mikil fyrir þetta mót að menn voru farnir að tala um verðlaun út á einhvert lið sem er að spila á því leveli í þessu móti sem er nákvæmlega á þeim stað þar sem íslenska landsliðið er á í dag 15 – 20 sætið á heimslistanum.
Eins og staðan er í dag eru Færeyja komnir fram úr Íslandi, þeir eru kannski ekki með eins mikla breidd enn þeir kunna að spila handbolta og eru með þjálfara sem veit um þeirra styrkleika og veikleika.
Það eitt að flæma Guðmund Guðmundsson úr starfi til að ráða reynslulausan Snorra Strein Guðjónsson er nátturulega ekkert annað enn heimska. Ég held að það þurfi að byrja á því að taka til í stjórninni hjá HSÍ.
Landsliðsvalið og hugsunarhátturinn sem við höfum unnið eftir handboltalega séð er okkur að falli, eins og ég sagði fyrir ári síðan þá er ekki hægt að fara á stórmót með enga skyttur í hópnum, þetta er sveins og vera með miðherja í körfubolta sem er 180cm til á berjast við menn sem eru 210 – 220cm undir körfunni. +Eg hef fylgst með handbolta í mörg ár og ég veit að yngri landsliðin hafa not öll vopnin sem eru til handboltalega séð þega farið er á stórmót.
Enn svo þega þessir leikmenn eru komnir yfit tvítugt þá er eins og þeirra ferli ljúki með landsliðinu.
við eigum eina af efnilegustu skyttu í handboltanum í dag í Þorsteini Leó Gunnarssyni enn ég veit ekki afhvju í anskotanum henn er ekki tekin með á þetta mót!
upphafning á Aroni Pálmasynir nær út fyrir öll mörk það er svona eins og hann sé homin með VIP kort að landsliðinu, blessaður maðurinn hefur ekki getað blautann með landsliðinu í mörg ár, það er spurning hvenær þessir einsleitu RUV sérfræðingar fara að átta sig á því?
Sem sagt það sem ég er að segja er það að við erum gjaldþrota í hanboltalegri hugsun, þetta er svo eins og ef við ættum sex bestu markmenn í heiminum þá tökum við þá alla með og notum þá til að spila hinar stöðurnar á vellinum?