Nixon, CIA & Woodward

frettinErlent, Hallur Hallsson1 Comment

Eftir Hall Hallsson:

Á fimmtudag skýrði fréttamaður Fox News Tucker Carlsson frá því að Richard Nixon forseta Bandaríkjanna hafi verið sparkað út úr Hvíta Húsinu fyrir næstum hálfri öld vegna þess að Nixon hafi búið yfir upplýsingum um morðið á John F. Kennedy í Dallas Texas í nóvember 1963. Á fundi með Richard Helms forstjóra CIA kvaðst Nixon vita hver hafi myrt Kennedy. Fundur Nixons og Helms þann 23. júní 1923 sé til á Nixon-tapes. Helms hafi svarað með þögn: total silcence.

ÚTSENDARAR CIA Í WATERGATE

Fjórir af fimm innbrotsþjófum í skrifstofur demókrata í Watergate hafi verið útsendarar CIA. Washington Post hafi haldið þeim upplýsingum leyndum. Fyrsta af mörgum fréttum Washington Post hafi verið skrifuð af hinum 29 ára gamla Bob Woodward sem hafi ekki verið blaðamaður heldur naval-officer nýkominn innan úr Pentagon þar sem hann hafði aðgang að innstu leyndarmálum; „top-secret clearance“. Woodward vann með njósnastofnunum Ameríku, sumsé útsendari. Fyrsta verkefni Woodward var að skrifa stærstu frétt Ameríku sem leiddi til afsagnar forseta Bandaríkjanna. CIA og Washington Post hafi átt samvinnu um að taka Nixon niður. Nixon var kjörinn forseti árið 1968 og endurkjörinn með meiri yfirburðum en nokkur annar í sögu bandarískra stjórnmála. Getur verið að Tucker hafi rétt fyrir sér. Woodward fyrirmynd blaðamanna um áratugi hafi verið útsendari CIA og Pentagon: Military Industrial Complex?

SAMSÆRI CIA OG FBI?

Tucker hélt áfram: „Svo því sé haldið til haga, þá var heimildarmaður Woodwards um Watergate hneykslið aðstoðarforstjóri FBI, Mark Felt sem stýrði prógrami Co-Intelpro –  sem hafði það markmið að rústa orðstýr pólitíkusa sem njósnastofnanir vildu taka  niður – fólk eins og Richard Nixon. Á sama tíma unnu njósnastofnanir að því að taka niður Spiro Agnew, varaforseta Nixon. Haustið 1973 var Agnew þvingaður til að segja af sér fyrir ólögleg skattskil.“

Eftirmaður Agnew var lítt þekktur fulltrúardeildarþingmaður, Gerald Ford sem átt hafði sæti í svokallaðri Warren-nefnd sem ári eftir morðið á Kennedy hafði gefið það út að Lee Oswald og Jack Ruby hefðu verið einir að verki. Enginn aðstoðað. Máli lokið. Tími til að halda áfram; þeir sem héldu öðru fram eru uppnefndir conspiracy theorists – samsærissmiðir. Tucker Carlsson hefur bendlað CIA við morðið á Kennedy, fjölmargar bækur hafa verið útgefnar um aðild CIA að morðinu en megin-miðlar þagga. Þrátt fyrir sérstakt lagaákvæði um að birta skjöl um Kennedy morðið í síðasta lagi 2017, þá neitar CIA enn að opinbera þau bandarískum almenningi.

HUGÐAREFNI CIA

Tucker upplýsti að Nixon var þvingaður til þess að samykkja Gerald Ford sem varaforseta. Þáverandi forseti þingsins, Carl Albert, hefði stært sig af því að koma Ford í embætti. Ljósið beinist að vélabrögðum CIA; Co-Intelpro gegn þeim sem ekki mökkuðu rétt. Annað hugarefni CIA var prógram nefnt MK-Ultra; lyfjagjafir, andlegt ofbeldi og heilaþvottur við yfirheyrslur til að fá fram játningar. Orwellsk vélabrögð upplýsa skrímslaeðli CIA. Þeir sem hafa styggt innvígða og innmúraðahafa miskunnarlaust og svívirðilega verið teknir niður.

HE IS REALLY DUMB

Er Donald Trump sá þriðji? Þegar Dónald gagnrýndi CIA eftir kjör sitt sagði leiðtogi demókrata 4. janúar 2017: „He is really dumb: Let me tell you, you take on the intelligence community, they have six ways from Sunday at getting back at you.” Nýr leiðtogi repúblikana í þinginu Kevin McCarthy samþykkti rannsókn á CIA & FBI til þess að ná kjöri loks í 15. tilraun. Þeir sem nú beina ljósi að myrkraverkum véluðum í Washington eru uppnefndir „öfgamenn“ af Washington Post. Merkimiðinn endurómar um veröld víða. Stórmerkilegt, ekki satt?

One Comment on “Nixon, CIA & Woodward”

  1. FBI er farin að minna á lífvarðasveitir rómversku keisaranna á annari og þriðju öld eftir Krists burð.

    Settu keisarana í hásæti að eigin geðþótta og myrtu þá eftir þörfum.

    Hæg er leið til helvítis, hallar undan fæti.

Skildu eftir skilaboð