First Republic Bank í Bandaríkjunum er fallinn og hefur JPMorgan Chase eignast allar innstæður bankans og „verulegan meirihluta eigna“. Eftirlitstaðilar hafa tekið yfir sjálfan bankann.
Þetta er næst stærsta bankagjaldþrot í sögu Bandaríkjanna, aðeins Washington Mutual bankahrunið er stærra. Frá því í mars hafa einnig Silicon Valley Bank og Signature Bank fallið.
Hlutabréf í First Republic hafa verið í frjálsu fall frá því að bankinn tilkynnti í síðustu viku að innlán bankans hafi rýrnað um 100 milljarða bandaríkjadollara á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.