Á vef vegagerðarinnar segir að búast megi við skammvinnum en öflugum hvelli að morgni laugardagsins 27. maí. Reikna má með snjókomu á fjallvegum Norðanlands og á Vestfjörðum og þörf á vetrarþjónustu. Einnig má búast við að loka þurfi vegum tímabundið fyrst og fremst á Suðausturlandi.
Í nótt fer yfir landið lægðardrag í háloftunum og með fylgir lægð sem spáð er að komi úr suðvestri og fari austur með Norðurlandi í nótt. Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir landið austanvert, norðanvert og fyrir norðanverða Vestfirði.
Reikna má með að þegar á líður á morguninn muni snjóa á fjallvegum norðantil, á Vestfjörðum og hugsanlega víðar. Búast má við krapasulli í byggð. Hvass vindur en lægir með morgninum. Norðaustanlands snjóar strax í fyrramálið.
Búast má erfiðri aksturskilyrðum vegna hálku og snjóa á flestum fjallvegum á þessu svæði og þeir gætu orðið ófærir fyrri hluta dags. Því getum komið til lokana fjallvega.
Suðaustanlands verður mikill vindur og harðir og skeinuhættir hnútar allt frá Lómagnúpi austur á firði. Því er líklegt að grípa þurfi til lokana þar með morguninn, fram undir hádegi og hugsanlega nokkuð frameftir degi.
Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með upplýsingagjöf Vegagerðarinnar á umferdin.is þar sem alltaf má finna nýjustu upplýsingar um færð og veður.
One Comment on “Gular veðurviðvaranir og von á vetrarveðri víða á fjallvegum”
Þeir meintu global warning, ekki global warming. Setjið bensínvélarnar í gang!