Skora á bæjarstjórn Reykjanesbæjar að standa fyrir íbúafundi vegna flóttamannavandans: undirskriftasöfnun hafin

frettinInnlendarLeave a Comment

Íbúar í Reykjanesbæ skora á bæjarstjórn Reykjanesbæjar að svara kalli íbúa og standa fyrir íbúafundi í Stapa Hljómahöll þar sem þingmönnum og ráðherra Suðurkjördæmis er boðið að sitja ásamt fulltrúum Lögreglustjóra og Brunavörnum Suðurnesja.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem hópurinn sendi frá sér fyrir stundu, en eins og landsmenn hafa orðið varir við fréttaflutning að undanförnu þá er bærinn komin að þolmörkum hvað varðar móttöku flóttafólks og hælisleitanda.

Vinnumálastofnun hyggst draga úr fjölda þeirra umsækjenda um alþjóðlega vernd sem dvelja í Reykjanesbæ og hefur stofnunin kynnt aðgerðaáætlun til að bregðast við þeim mikla fjölda sem dvelur þar samanborið við önnur sveitarfélög. 

Þá segir seg­ir Mar­grét Sand­ers, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Reykja­nes­bæ, „að það sé upp­selt í Reykja­nes­bæ. Innviðirn­ir séu sprungn­ir og bær­inn er kom­inn langt yfir þol­mörk hvað varðar fjöld­ann.“

Íbúar hafa ítrekað kallað eftir íbúafundi með bæjarfulltrúum vegna ástandsins en án árangurs. Hefur því hópur fólks tekið sig saman og komið af stað undirskriftarlista sem er nú aðgengilegur inn á Ísland.is

Það er facebook hópurinn Reykjanesbær - tökum samtalið sem stendur fyrir áskoruninni, þar segir orðrétt:

Við undirrituð skorum á bæjarstjórn Reykjanesbæjar að svara kalli íbúa og standa fyrir íbúafundi í Stapa Hljómahöll þar sem þingmönnum og ráðherra Suðurkjördæmis er boðið að sitja ásamt fulltrúum Lögreglustjóra og Brunavörnum Suðurnesja. Forsvarsmenn undirskriftalistans, þau Sigríður Haraldsdóttir og Sigurjón Hafsteinsson óska jafnframt eftir því að vera með í ráðum hvað varðar skipulag íbúafundar og framsetningu.

Hægt er að skrifa undir áskorunina hér.

Bæjarstjórn og bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2022-2026

Skildu eftir skilaboð