Hvetur til ofbeldis gagnvart meðlimum Samtaka 22: „mikilvægt að berja Eld og Ivu“

frettinHatursorðæða, Innlendar, Transmál3 Comments

Transkona sem kallar sig Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir, setti inn færslu á facebook í gær, þar sem hún hvetur til ofbeldis gagnvart baráttufólkinu Eld Ísidór Deville, og Ivu Marín Adrichem og félögum þeirra í Samtökum 22.  Alda segir að „mikilvægt sé að berja þau.“ Alda fæddist líffræðilegur karlmaður og hét áður Stefán Skarphéðinsson.

Eins og flestum er kunnugt um þá er Iva Marín Adrichem, blind ung kona sem einnig er samkynhneigð.

Samtökin 22 hafa gagnrýnt transmeðferðir á börnum og hormónalyfjagjafir sem getur haft mjög alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar. Mörg lönd hafa nú bannað umræddar meðferðir. Fréttin greindi nýlega frá því að Danmörk hefur bannað meðferðirnar ásamt Bretlandi og Svíþjóð.

Transsamfélagið á Íslandi virðist ekki komin eins langt í fræðunum og nágrannaríki okkar í Evrópu og líta á það sem hatur að gagnrýna skaðlegar og óafturkræfar meðferðir, en margt fólk sem hefur undirgengist slíkar meðferðir sjá eftir ferlinu og segja hafa eyðilagt líf sitt, það sé náttúrulaust og geti aldrei eignast börn eða stundað kynlíf. Hér má sjá eina slíka heimildarmynd.

Í samtali við Fréttina segir Eldur að Iva Marín sé búin að kæra hatursorðæðuna til lögreglu.

Nokkuð ljóst að um er að ræða um brot á 233. gr. hegningarlaga.

Alda Vigdís, áður Stefán Skarphéðinsson.

Transkonan gengur svo lengra en að hvetja til barsmíða og kallar þau Ivu og Eld nýnasista án nokkurs rökstuðnings.

Ofbeldishótun Öldu í heild sinni:

Ég held það sé nokkuð mikilvægt að berja nýnasista eins og Eld, Ívu og félaga þeirra.

Vandamálið er að ég kemst ekki í það eins og er, þar sem ég er stödd erlendis, en ég reikna ekki með öðru en að einhver gangi í málið sem fyrst fyrir mína hönd.

Með fyrir fram þökk.

3 Comments on “Hvetur til ofbeldis gagnvart meðlimum Samtaka 22: „mikilvægt að berja Eld og Ivu“”

  1. Þessi einstaklingur er hér með búinn að glata orðspori sínu og getur aldrei endurheimt það. Íslenska trans samfélagið er andvígt ofbeldi og hann er ekki sérstakur erindreki þess. Eldur, Íva og félagar eru ekki nýnasistar. Það er hann sem er hinn raunverulegi nýnasisti. Það gerir enginn neitt fyrir hans önd hér eftir.

Skildu eftir skilaboð