Fyrrverandi leikmaður Ajax, Jody Lukoki, er látinn aðeins 29 ára gamall. Aðstandendur Lukoki hafa staðfest þessar fréttirnar en Lukoki lék með öllum yngri landsliðum Hollands á sínum tíma en síðar fyrir A-landsliðs Kongó. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp.
Lukoki var síðast á mála hjá FC Twente í Hollandi en varð fyrir meiðslum á hné í byrjun tímabils . Hann var leystur undan samningi hjá liðinu í febrúar á þessu ári.
Ajax og fleiri minnast leikmannsins á Twitter: