Í yfirlýsingu til Post Millennial frá Lesbian Strength Collective segir: „Þetta eru kynbundnar ofsóknir ... Það er ráðist á okkur af því að við erum konur og alfarið samkynhneigðar. Þeir hafa túlkað kynvitund okkar sem transfóbíska og því má spyrja hvort trans-hugmyndafræðin sé hómofóbísk? ... Transaktívistar birtust á fyrstu Lesbian Strength göngunni 2019, eltu okkur eftir götum Leeds og ásökuðu okkur um hatur ásamt því að þeir kröfðust þess að við bæðum karla velkomna í hópinn. Hið pólitíska loftslag hefur hitnað mjög síðan og ofbeldi beitt á götusamkomum í Bretlandi og í BNA. En þeir gátu ekki stöðvað okkur í að hittast þá og þeir munu ekki stöðva okkur núna. Samkomur lesbía einkennast af gleði og jákvæðri orku - karlar munu aldrei geta skilið þá tilfinningu."
Breska baráttukonan, róttæki feministinn (og lesbían) Julie Bindel lýsir hinu nýja pólitíska landslagi í nýlegri grein í Spectator. Hún hefur barist fyrir réttindum kvenna allt frá því á áttunda áratugnum og var ein þeirra fáu sem höfðu hugrekki til að mótmæla tilvist „grooming" gengjanna bresku á þeim tíma sem þau þóttu hugarburður rasista.
Hún segir frá því að hópur lesbía, Get the L out UK, hafi reynt að taka þátt í gleðigöngu í Wales nýverið en að lögreglan hafi vísað þeim burt. Í stað þess að ræða við þá er æptu ókvæðisorð að þeim þá hafi lögreglan valið þá leið. Julie segir frá því að fyrsta gleðigangan sem hún tók þátt í hafi verið Lesbian Strength, 1981. Flestar lesbíur sem hafi tekið þátt í stofnun samtaka samkynhneigðra á áttunda áratugnum hafi fengið nóg af kynjamisrétti þar - þeim hefði verið ætlað að hella upp á te og þjóna körlunum, rétt eins og þær væru gagnkynhneigðar.
Norski feministinn Christina Ellingsen var ákærð fyrir hatursorðræðu í sumar sakir tvíta þar sem hún mótmælir því að karlar geti verið lesbíur. Það er skoðun hennar og flestra annarra. Gætu lesbíur ekki alveg eins kært transaktívistana og Antífaliðana fyrir hatursorðræðu gagnvart samkynhneigðum konum?
2 Comments on “Transaktívistar og Antífa hyggjast mótmæla göngu lesbía í Leeds um helgina”
Vaginas are made for penises.
And vice versa.
Þetta fólk er mikið áttavillt og úti að aka þótt að það kunni ekki að keyra.