Jón Magnússon skrifar:
Meira en 3 þúsund beiðnir fólks um alþjóðlega vernd, þ.e. mismunandi löglegra og ólöglegra innflytjenda hafa borist á árinu 2022. Talsmaður Rauða Krossins í þessum málum segir að e.t.v. þufi að koma upp flóttamannabúðum (notaði fínna orð.)
Neyðarkallið kemur ekki á óvart. Við erum með gölnustu stefnu í innflytjendamálum í allri Evrópu. Eðlilega eykst því straumur fólks hingað í stöðugt auknara mæli eftir því sem kostir þrengjast fyrir gervihælisleitendur í öðrum löndum.
Í haust mótmælti hópur ungs fólks í Reykjavík vegna skorts á dagheimilisplássum fyrir börn vinnandi fólk. Að hluta til stafa erfiðleikarnir af fjölgun hælisleitenda. Sama er varðandi húsnæðisskortinn.
Á sama tíma og Kína tekur ekki við hælisleitendum og Saudi Arabar telja að flóttamannavandi í Arabíu komi þeim ekki við og þá ekki heldur Japanir, þá er pólitíska elítan á Íslandi svo snargalin, að telja að við séum Guðs útvalin þjóð, til að taka við hvaða hlaupastrák sem vera skal á kostnað skattgreiðenda.
Ríkisstjórnin stefnir að því lóðbeint með hælisleitendadekri sínu að gera lífskjörin í landinu verri og svipta Íslendinga aðgangi að grunnþjónustu.
Samþykkja kjósendur það að stjórnmálaelítan haldi áfram að skaða lífskjörin í landinu með þessari gölnu stefnu í málefnum útlendinga.
3 Comments on “Flóttamannabúðir”
Hin marxíska elíta er snarklikkuð, það er stefna hennar að yfirfylla vestrænar þjóðir af fátæku fólki frá Afríku og Múslimalöndum. Ísland er á stuttum tíma að verða að samansafni þjóðarbrota en ekki íslensk, norræn þjóð. Þegar slær verulega í harðbakkann á Vesturlöndum þá brjótist út vopnuð átök á milli mismunandi þjóðahópa. Útópía Marxista/Glóbalista er alls ekki svo björt – fyrir almenning.
Mesta hugsunarleysið þykir mér vera að fólk skuli vera að búa til fleiri íbúa í þennan heim eins og staðan er á ýmsum sviðum. Hnattræn hlýnun, fæðuskortur og ýmislegt fleira sem gerir þessa jörð ekki beint búsældarlega fyrir komandi kynslóðir.
Nei ég samþikki það ekki að stjórnmálaelítan haldi áfram að skaða lífskjörin í landinu með þessari gölnu stefnu í málefnum útlendinga…